Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sumarstarf

Sumarstarf

Á hverju ári er boðið er upp á skemmtilegt, spennandi og þroskandi sumarstarf fyrir börn og unglinga. Í apríl ár hvert opnar svokallaður Sumarvefur sem er upplýsingavefur sem auðveldar börnum og forráðamönnum að skoða það sem í boði er fyrir börn og unglinga í borginni á sumrin. Á sumarvefnum eru upplýsingar um það starf sem í boði er, auk þess sem öðrum, s.s. frjálsum félögum, er boðið að setja upplýsingar um sitt sumarstarf þar inn. Það auðveldar val foreldra og barna að hafa allar upplýsingar á einum stað.

Umsjón með sumarstarfi er í höndum fagfólks með mikla reynslu af barna- og unglingastarfi. Það fær bæði fjölbreytta og hagnýta fræðslu sem varðar m.a. þekkingu á viðfangsefnum sumarstarfsins, skyndihjálp og öryggisferlum, þannig að allar öryggiskröfur séu uppfylltar. Sérstök aðgát er höfð í sundferðum, siglingum og þegar ferðast er með börnin á milli staða.

Starfsfólk leggur metnað sinn í að öllum þátttakendum líði vel. Hverjum hópi fylgir ávallt bakpoki sem í er nauðsynlegur sjúkrabúnaður, listi með nöfnum allra þátttakenda og forráðamanna ef eitthvað kemur upp á, strætókort, sími, auk fleiri nytsamlegra hluta.

Börnin þurfa að vera klædd í samræmi við veður. Ekki er boðið upp á hádegisverð og því verða börnin að koma með nesti.

Sumarverfur opnar síðasta vetrardag sem er 20. apríl. Þar verður að finna upplýsingar um sumarstarf ÍTR og fjölmargra annarra aðila sem bjóða upp á sumarstarf og námskeið í Reykjavík í sumar. Skráning í sumarstarf hefst 2. maí.



Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000


English Español Polski Thai