Frístundastarf fyrir fötluð börn og ungmenni

Frístundamiðstöðin Kringlumýri er þekkingarmiðstöð í málefnum barna og unglinga með fötlun.
Deildarstjóri frítímastarfs fatlaðra barna er Katrín Þórdís Jacobsen, s: 411 5404.
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir starfsemi skrifstofu tómstundamála fyrir börn, unglinga og ungmenni með fötlun.
6-9 ára: Frístundaheimili
Börn með fötlun sem eru í almennum grunnskólum Reykjavíkurborgar sækja frístundaheimili við sinn skóla. Skóla- og frístundasvið leggur áherslu á að veita einstaklingsmiðaða þjónustu á frístundaheimilunum þar sem komið er til móts við börnin og þjónustuþörf þeirra.
Ráðgjafarþroskaþjálfi, Sigríður Rut Hilmarsdóttir, s: 411 5405
Frístundaheimili ÍTR
10-16 ára: Frístundaklúbbar
Skóla- og frístundasvið rekur fjóra frístundaklúbba í borginni fyrir börn og unglinga með fötlun á aldrinum 10-16 ára.
Frístundaklúbbar ÍTR
13-16 ára: Félagsmiðstöðvar
Starfsemi félagsmiðstöðva miðar að því að bjóða öllum unglingum upp á valkost í frítímanum undir handleiðslu hæfra starfsmanna.
Félagsmiðstöðvar ÍTR