Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Laugardalslaug - almennar upplýsingar

Arkitektar: Einar Sveinsson, Bjarni Konráðsson og Jes Einar Þorsteinsson
Byggingarár: 1968. Viðbygging 1986
Saga byggingarinnar: Talið er að sund-og baðferðir hafi verið tíðkaðar frá alda öðli í Laugardalnum. Sagt er frá baðlaug suður af Laugarnesi 1772. Sundkennsla hófst árið 1824 að vísu eingöngu fyrir pilta. Árin 1907-1908 lét bæjarstjórn Reykjavíkur hlaða laugarker úr tilhöggnum steini er það trúlega fyrsta íþróttamannvirkið sem bærinn byggði.Síðan hefur sund verið iðkað í Laugardalnum. Árið 1958 var hafist handa við að byggja Laugardalslaugina rétt sunnan við Sundlaugaveg. Sundlaugin var tekin í notkun 1.júní 1968. Kostnaður við gerð laugarinnar var kr 73.928.000. Byrjað var á nýrri bað-og búningsaðstöðu árið 1981 við laugina, viðbyggingin var tekin í notkun 1986. Kostnaður við var kr. 124.200.000. 

Laugardalslaug

 STÆRÐ BYGGINGAR  5.002 m2  14.610 m3
 FJÖLDI BÍLASTÆÐA  210  

 AÐALLAUG  L: 50 m., B: 22 m.

 Mesta dýpi 1,76 m.,
 minnsta dýpi 0,80 m.

 Flatarmál laugar er 1.100 m2  Rúmmál laugar 2.730 m3  Hitastig 28°C
 Hringrásartími 4 x á sólarhring    Fjöldi brauta og ráspalla 8        Hreinsitæki eru 4

 BARNALAUG  Nýrnalaga

 Mesta dýpi 0,80 m.,
 minnsta dýpi 0,80 m.

 Flatarmál laugar er 400 m2         Rúmmál laugar 320 m3            Hitastig 32°C
     Hreinsitæki eru 2

 VAÐLAUG  Þvermál 4,50 m.                   

 Mesta dýpi 0,40 m.,
 minnsta dýpi 0,00 m.

 Flatarmál laugar er  m2                 Hitastig 32°C

 IÐULAUG  

 

 Flatarmál laugar er 30 m2                        Rúmmál laugar 17 m3                          Hitastig 39°C                  

 HEITIR POTTAR  

 Hreinsitæki eru 9 fyrir heita potta.

 Pottur 1    Hitastig 38°C          7,0 m2  5,6 m3  Sótthreinsun er klór.
 Pottur 2    Hitastig 40°C  7,0 m2  5,6 m3
 Pottur 3    Hitastig 42°C  7,0 m2  5,6 m3
 Pottur 4    Hitastig 44°C  7,0 m2  5,6 m3  

 EIMBAР                                     Sameiginlegt fyrir karla og konur á útisvæði - 18 m2

Leiktæki
Vatnsrennibraut 1 stk. Hæð brautar 8 m lengd 84 m. Lítil rennibraut 2m á hæð staðsett við barnalaug. 8 minigolfbrautir. Úti þrektæki. Leiktæki fyrir börn. "Kolkrabbinn" uppblásið leiktæki. Í kjallara eru 2 leikfimisalir samtals 250m². Tækjasalur 130m². Við laugina eru merktar skokkbrautir 3 og 5 km.

Aðstaða
Í Laugardalslaug er veitingasala þar sem hægt er að kaupa ýmsar léttar veitingar, snyrtivörur, sundföt o.fl. Veitingasalur fyrir 90 gesti. Fundarsalur.

Forstöðumenn frá upphafi  
Ragnar Steingrímsson 1968-1986
Kristján Ögmundsson  1986-2003
Stefán Kjartansson 2003-2005
Logi Sigurfinnsson 2005- 
   
Aðstoðarforstöðumaður
 
Marteinn Kristinsson  1988-1999 
   
Verkefnisstjóri   
Bjarni Kjartansson  1999-2005 
   
Rekstrarstjóri   
Ásgeir Sigurðsson  2005-




English Español Polski Thai