Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sundhöllin - almennar upplýsingar

Arkitekt: Guðjón Samúelsson
Byggingarár: 1929-1937
Saga byggingarinnar
Í æviminningum Knud Zimsen, bæjarverkfræðings 1902, kemur fram að hann gerði tillögu að byggingu yfirbyggðrar sundlaugar í Reykjavík, tillagan fékk ekki hljómgrunn í bæjarstjórn Reykjavíkur.

Árið 1927 kemur  Jónas frá Hriflu með þá hugmynd að ríkissjóður leggði fram 50 þúsund krónur í Sundhallarbyggingu gegn því að bæjarsjóður legði fram jafn háa upphæð, tilllagan var ekki samþykkt.

 Sundhöllin

Árið 1928 bar ríkisstjórnin fram frumvarp um byggingu Sundhallar í Reykjavík, frumvarpið hljóðaði uppá að ríkið leggði fram 100 þúsund krónur og að borgin legði fram annað eins auk lóðarinnar.

 

Sundhöllin

Fyrsta tillaga Guðjóns Samúelssonar var bygging í burstabæjarstíl laugin átti að vera þrískipt, ein laugin átti að vera fyrir börn, önnur stærri fyrir íþróttamenn, sú þriðja átti að vera sjólaug. Hætt var við að byggja eftir fyrstu tillögu Guðjóns, en árið 1929 var byrjað á að byggja Sundhöllina í þeirri mynd sem hún er í dag. Í nokkur ár gekk hvorki né rak með bygginguna vegna fjárskorts. Sundhöllin var loksins tekin í notkun 24. mars 1937. 

 STÆRÐ BYGGINGAR  2.661,8 m2  Rúmmál  9.590,4 m3
 STÆRÐ LÓÐAR  5.250 m2  Fjöldi bílastæða  30

 AÐALLAUG  L: 25 m., B: 10 m.

 Mesta dýpi 4,00 m.,  

 Flatarmál laugar er 250 m2  Heildarvatnsmagn 780 m3  Hitastig 29°C

 BARNALAUG  L: 7,2 m., B: 10 m.          

 Mesta dýpi 1,10 m., 

 Flatarmál laugar er 72 m2      Hitastig 32°C

 HEITIR POTTAR  

 Nuddpottur              Hitastig 37-39°C 

 16,7 m² 17,6 m³

 Heitur pottur  Hitastig 40-42°C  10,4 m² 10,9 m³

 EIMBAÐ  Opnað árið 2001                                                  

 6,9 m²   17,3 m³                   

 

Leiktæki
Tvö stökkbretti eru í lauginni það lægra er 1,0 m frá vatnsyfirborði það hærra 2,75 m frá vatnsborði.

Forstöðumenn frá upphafi   
Ólafur þorvarðarson 1937-1942
Sigríður Sigurjónsdóttir 1942-1945
Þorgeir Sveinbjarnarson 1945-1971
Hermann Hermannsson 1971-1975
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
og Lilja Kristjánsdóttir
1975-1983
Kristján Ögmundsson 1983-1986
Stefán Kjartansson 1986-1993
Bjarni Kjartansson 1993-1998
Björg Snjólfsdóttir 1998-1999
Gísli Jensson 1999-2005 
Óttarr Hrafnkellsson 2005-2005
Katrín Lovísa Irvin 2005-2010
Gísli Jensson 2010
   




English Español Polski Thai