Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Tölum saman

04.11.2009

Upplestur á frétt 

Mikið fjölmenni og mikil gleði var á aðalsafni Borgarbókasafns, sunnudaginn 1. nóvember, þegar eins árs afmæli Söguhrings kvenna var fagnað. Frú Vigdís Finnbogadóttir afhjúpaði listaverkið Tölum saman sem meðlimir Söguhringsins höfðu unnið í sameiningu undir handleiðslu listakvennanna Fitore Berisha og Helgu Arnalds. Einnig var frumsýnt myndband með sama nafni eftir Helgu Arnalds. Fólk af erlendum sem og íslenskum uppruna skemmti viðstöddum með tónlist og dansi og boðið var upp á veitingar.

Sjá nánar á heimasíðu Borgarbókasafns

Tölum saman - afhjúpun

Frá afhjúpun verksins