Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Minjagripur Reykjavíkurborgar

19.03.2010

Upplestur á frétt 

Föstudaginn 19. mars voru veitt verðlaun í hönnunarsamkeppni um minjagrip fyrir reykjavíkurborg. Óskar Bergsson formaður borgarráðs afhenti verðlaunin. Fyrstu verðlaun hlutu vöruhönnuðirnir Friðgerður Guðmundsdóttir og Kristín Birna Bjarnadóttir. Fá þær að launum 600.000 kr.

Í upphafi var lagt upp með að minjagripurinn skildi vísa til þeirrar hreinu orku sem Reykjavík býr yfir í fleiri en einni merkingu: í náttúrunni, vatninu, menningunni og sköpunarkraftinum.

Verðlaunahönnun þeirra Friðgerðar og Kristínar er handklæði og sápa sem þær kalla Pure Reykjavík towel/soap og vísar í sundlaugamenningu borgarbúa. Formin eru fengin úr heitu pottunum í Laugardal. Sápan er í tveimur litum og í raun afsteypa af heitum potti. Handklæðið er mjög óhefðbundið í formi fyrir handklæði og er hægt að sveipa um sig eins og sjali.

Þær Friðgerður og Kristín hafa  nú þegar undirbúið framleiðslu á minjagripunum og eiga von á að þeir verði komnir í sölu í sumar.