Dvöl í Kjarvalsstofu í París laus til umsóknar
22.03.2010
Upplestur á frétt 
Menningar- og ferðamálasvið auglýsir eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu í París fyrir tímabilið 1. ágúst 2010 til 31. júlí 2011. Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð með vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts er rekur stofuna og miðast við kostnað af rekstri hennar. Á árinu 2010 verða þau 370 evrur á mánuði fyrir einstakling en 470 evrur á mánuði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark tveir mánuðir í senn en vegna fjölda umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn.
Umsóknareyðublað má finna á Rafrænu Reykjavík. Umsóknir, með lýsingu á því verkefni sem umsækjandi hyggst vinna að, skulu stílaðar á:
Sjórnarnefnd Kjarvalsstofu,
Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar,
Ingólfsnausti, Vesturgötu 1,
101 Reykjavík.
Ætlast er til að umsækjendur skili inn stuttri greinargerð til stjórnarnefndar Kjarvalsstofu í París um afrakstur dvalarinnar.
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi miðvikudaginn 21. apríl 2010.
Reglur um afnot listamanna af Kjarvalsstofu í París
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu í París 2009 - 1012 skipa:
Guðrún Erla Geirsdóttir formaður skipuð af borgarráði
Stefán Máni Sigþórsson skipaður af borgarráði
Fríða Björk Ingvarsdóttir skipuð af menningar- og menntamálaráðuneyti
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna Jónsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs, netfang nanna@reykjavik.is