Reykjavíkurborg samþykkir 100 milljónir króna til sameiginlegs markaðsátaks í ferðaþjónustu vegna goss í Eyjafjallajökli
29.04.2010
Upplestur á frétt 
Borgarráð ákvað einróma á fundi sínum í morgun að verja 100 m.kr. til sameiginlegs markaðsátaks í ferðaþjónustu með helstu hagsmunaaðilum í greininni vegna gossins í Eyjafjallajökli. Er þetta gert í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu, sem komin er upp í íslenskri ferðaþjónustu og hjá fjölmörgum fyrirtækjum í Reykjavík sem treysta á viðskipti erlendra ferðamanna.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, segir: „Reykjavíkurborg brást hratt við og hafa Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar og Höfuðborgarstofa unnið náið með rekstraraðilum í ferðaþjónustunni. Með sameiginlegu markaðsátaki næst vonandi að sporna við fyrirséðum samdrætti þannig að tjónið á núverandi ferðatímabili verði lágmarkað.“
Vegna öskufalls frá gosinu í Eyjafjallajökli og mikilla hindrana í flugsamgöngum er komin upp afar alvarleg staða í íslenskri ferðaþjónustu. Miklar afbókanir hafa verið á flugsætum, gistingu, bílaleigubílum og annarri ferðaþjónustu. Nýting á hótelum í Reykjavík er um þessar mundir allt niður í helming þess sem var á sama tíma í fyrra og ráðstefnur og komur skipulagðra hópa hafa fallið niður eða verið afbókaðar samkvæmt upplýsingum frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan hefur kallað mjög ákaft eftir viðbrögðum og stuðningi opinberra aðila vegna þessa og hefur ríkisstjórnin þegar heitið því að verja allt að 350 m.kr. til þess að þegar í stað verði ráðist í heildstætt og kröftugt markaðs- og kynningarátak fyrir Ísland sem áfangastað.
Áformað er að átakið hefjist um leið og fjármögnun liggur ljós fyrir og mat Almannavarna og jarðvísindamanna staðfesti að forsendur séu til þess að samgöngur til landsins komist í eðlilegt horf. Markmið verkefnisins verður að:
• Leiðrétta þær ranghugmyndir um ástand mála á Íslandi sem birst hafa í erlendum fréttamiðlum.
• Sporna við fyrirséðum samdrætti og afbókunum.
• Nýta það tækifæri sem umfjöllunin um eldgosið hefur skapað og kynna um leið Ísland sem spennandi áfangastað.
• Hvetja til bókana strax svo unnt verði að lágmarka tjónið á núverandi ferðatímabili.
Menningar- og ferðamálasviði er falið að sjá um þátt Reykjavíkurborgar í verkefninu og tryggja að framlagið nýtist til að efla ferðaþjónustu í Reykjavík.