Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2010
10.05.2010
Upplestur á frétt 
Menningar- og ferðamálasvið minnir á að umsóknarfrestur vegna Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2010 rennur út 1. júní 2010.
Auglýst er eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2010.
Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Kolbrún Bergþórsdóttir formaður og Jón Óttar Ragnarsson tilnefnd af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Ingibjörg Haraldsdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2010.
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs s. 590 1520 og 590 1521.