Tvítyngi á fjölskyldumorgni í Borgarbókasafni
19.05.2010
Upplestur á frétt 
Á fjölskyldumorgni, fimmtudaginn 20. maí, kl. 10.30, mun Fríða B. Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikskólasviði, fjalla um tvítyngi í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Kaffi á könnunni og bækur og leikföng fyrir börnin. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Borgarbókasafn Reykjavíkur, í samstarfi við Menningarmiðstöðina í Gerðubergi og Leikskólasvið, stendur fyrir fjölskyldumorgnum þar sem fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið að koma og eiga saman góða stund á bókasafninu. Boðið er upp á óformlega dagskrá um ýmis málefni. Leikföng og bækur fyrir börnin eru á staðnum og boðið upp á kaffisopa.
Nánari dagskrá verður mótuð í samstarfi við þátttakendur með þarfir þeirra og óskir að leiðarljósi.
Upplýsingar á 9 tungumálum er að finna á heimasíðu Borgarbókasafns
TÍMI OG STAÐUR:
Þriðjudaga kl. 10:30-11:30
Borgarbókasafnið í Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, s. 557 9122
Fimmtudaga kl. 10:30-11:30
Aðalsafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, s. 411 6100
Nánari upplýsingar:
kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is