Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kvöldgöngur í hverfunum

23.06.2010

Upplestur á frétt 

SmáíbúðahverfiðFimmtudagskvöldið 24.júní verður kvöldganga um Smáíbúðahverfið.
Magnús Aspelund sagnfræðingur og M.A. í hagnýtri menningarmiðlun rekur sögu og þróun hverfisins en gangan nefnist „Smáíbúðahverfið - sjálfsbjargarstefna í húsnæðismálum“. Gangan hefst kl. 20:00 við hús nr. 69 við Sogaveg (miðja vegu á milli Grensásvegar og Réttarholtsvegar).  Í göngunni verða sýndar gamlar myndir úr hverfinu og m.a. sagt frá sveitabúskap á svæðinu sem víkur smám saman fyrir íbúðahverfi sem var eins og sérstætt þorp aðgreint frá sjálfri borginni.

Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur á fimmtudagskvöldum í sumar. Lagt er af stað í göngurnar kl. 20.

Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.