Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Bókmenntagöngur á ensku

28.06.2010

Upplestur á frétt 

Borgarbókasafn býður erlendum ferðamönnum og öðrum sem ekki tala íslensku upp á bókmenntagöngur á ensku vikulega í júlí og ágúst, alla fimmtudaga kl. 17. Markmiðið er að kynna íslenskar bókmenntir fyrir erlendum göngugestum, hvort sem þeir eru ferðamenn eða búsettir hér á landi. Jafnframt eru bókmenntirnar notaðar til að varpa ljósi á sögu Reykjavíkur.

Göngurnar eru framlag Borgarbókasafnsins til menningarlegrar ferðaþjónustu, með sérstakri áherslu á að kynna borgina í ljósi bókmennta og sögu.

Dagskrá göngunnar eins frá viku til viku. Gengið er frá Grófarhúsi og tekur gangan um eina og hálfa klukkustund. Leiðsögumaður er Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og með henni er bandarískur leikari sem búsettur er á Íslandi, Darren Foreman, en hann fer með textana sem kynntir eru í göngunni. Leikkonan María Þórðardóttir hleypur svo í skarðið þegar með þarf.

Þessi ganga er blanda af sögugöngu og bókmenntagöngu þar sem viðkomustaðir eru kynntir bæði sögulega og síðan útfrá ákveðnum bókmenntatextum sem tengjast staðnum og höfundar þeirra kynntir um leið. Dæmi um viðkomustaði eru við Landnámssýninguna í Aðalstræti þar sem fjallað eru um fyrstu landnemana og Íslendingasögurnar, Lækjartorg þar sem Halldór Laxness er kynntur til sögunnar, Miðbæjarskólinn þar sem smásaga Svövu Jakobsdóttur frá hernámsárunum er kynnt og Þjóðmenningarhúsið þar sem lesið er úr hrollvekjandi glæpasögu Yrsu Sigurðardóttur. Að auki er gangan ríkulega ljóðskreytt.

www.borgarbokasafn.is


Senda á Facebook