Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

KENNILEITI MINNINGANNA - KVÖLDGÖNGUR Í HVERFUNUM

01.07.2010

Upplestur á frétt 

Horn Aðalstrætis og VesturgötuFimmtudagskvöldið, 1. júli kl. 20:00 mun Sigurlaug Ragnarsdóttir annast leiðsögn um útilistaverk í miðbænum  þegar lagt verður upp í fjórðu kvöldgönguna sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir.

Gangan tekur um klukkustund en í henni mun Sigurlaug kynna ólíkar aðferðir við miðlun útilistaverka, gildi miðlunar og upplifun einstaklings á henni. Í göngunni verður lögð áhersla á að skoða útilistaverk á hugmyndafræðilegum grundvelli og draga þannig fram nýjar áherslur og nýja sýn auk þess að vekja upp spurningar um mikilvægi verkanna.
Gangan hefst við listaverkið Miðja Reykjavíkur eftir Kristinn E. Hrafnsson á mótum Vesturgötu og Aðalstrætis.

Sigurlaug Ragnarsdóttir er listfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur rannsakað og safnað saman upplýsingum um útilistaverk í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar með miðlun í huga.

Sýningarsalir og Súpubarinn í Hafnarhúsi eru opnir til kl. 22:00 öll fimmtudagskvöld. 

Aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar um gönguna veitir Sigurlaug Ragnarsdóttir í síma 699-4455.