Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Berglind Björnsdóttir ljósmyndari hlýtur styrk úr minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar

01.07.2010

Upplestur á frétt 

 f.v. María Karen Sigurðardóttir safnsstjóri Ljósmyndasafns Reykjavíkur og formaður sjóðsstjórnar, Berglind Björnsdóttir ljósmyndari og styrkhafi 2010, Sigrún Tryggvadóttir, Magnús Karl Pétursson og Guðrún Tryggvadóttir. Sigrún, Magnús Karl og Guðrún eru barnabörn Magnúsar Ólafssonar og stofnendur Minningarsjóðsins.Berglind Björnsdóttir ljósmyndari  hlaut á dögunum styrk úr Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar (1862-1937). Mjög margar frambærilegar umsóknir bárust og var valið af þeim sökum afar erfitt.  Fjöldi umsókna var vonum framar; umsækjendur 70 talsins og margir með fleiri en eina umsókn.  Í úthlutunarnefndinni voru Leifur Þorsteinsson ljósmyndari fyrir hönd fjölskyldunnar, Lárus Karl Ingason formaður Ljósmyndarafélags Íslands og María Karen Sigurðardóttir safnstjóri Ljósmyndasafns Reykjavíkur og formaður sjóðsstjórnar.

Tilgangur Minningarsjóðs Magnúsar Ólafssonar er að styrkja ljósmyndun á Íslandi sem listgrein. Hann er eini sjóður sinnar tegundar hér á landi, einungis ætlaður þeim sem vinna að ljósmyndun á Íslandi eins og kemur fram í skipulagsskrá sjóðsins.  En það voru erfingjar Magnúsar sem stofnuði sjóðinn og afhentu hann  Ljósmyndasafni Reykjavíkur  árið 2000.

Þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og er styrkurinn 700 þúsund krónur. Ráðgert er að veita styrk úr sjóðnum þriðja hvert ár.

Berglind Björnsdóttir er menntuð sem ljósmyndari í Bandaríkjunum, var bæði í Florida og Arizona ásamt því að vera nýútskrifuð frá Háskóla Íslands úr Hagnýtri Menningarmiðlun.  Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga  hérlendis og erlendis, auk þess að hafa tekið þátt í á 3 tug sýninga, ýmist einkasýningar eða samsýningar.

Verkefnið sem ber heitið Kona á að fjalla um konur á öllum aldri, drauma þeirra og þrár.
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur veitti  Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar  500 þúsund króna framlag vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum.