Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þriðjudagsganga í Viðey 13.júlí - Útijóga

13.07.2010

Upplestur á frétt 

Þriðjudagsganga vikunnar, þann 13.júlí verður með alveg nýju sniði. Að þessu sinni verður boðið upp á Útijóga með jógakennaranum Ragnheiði Ýr Grétarsdóttur.
"Algengast er að stunda jóga innandyra í þartilgerðum sal eða rými. Jóga er samt hægt að stunda hvar sem er og er náttúran tilvalinn staður. Að komast burt úr skarkala dagsins, anda að sér útiloftinu, hlusta á náttúruhljóðin og finna hvernig öndunin verður reglubundin um leið og lagt er af stað í gönguferð, er í raun jóga í sjálfu sér. Hugurinn kyrrist og líkami og sál fá sína endurnæringu. Í þessum aðstæðum og umhverfi passar einstaklega vel að gera jógaæfingar.”  (af www.anda.is)

ViðeyViðey skartar sínu fegursta í júlí og um að gera að njóta kvöldgöngu í náttúrunni nú meðan dagur er hvað lengstur. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið á þriðjudagskvöldum en aðra daga lokar kaffihúsið kl. 17:00. Þriðjudagskvöldin eru því kjörin til að bregða sér til Viðeyjar, fá sér léttan kvöldverð í Viðeyjarstofu, hreyfa sig svolítið og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið. Aukasiglingar eru á þriðjudögum kl.18:15 og 19:15 til Viðeyjar en leiðsögnin hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu. Gangan tekur um einn og hálfan tíma og siglt er til baka um kl.22:00. Ferjutollur er kr.1000.- fyrir fullorðna, kr.500.- fyrir 6-18 ára og frítt fyrir þau yngstu. Leiðsögnin og kennslan eru  ókeypis og öllum heimil og allir göngumenn og konur fá Kristal frá Ölgerðinni til að svala þorstanum.

af  www.videy.com