Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hvað á verkið að heita? Úrslit úr nafnasamkeppni kynnt

01.12.2011

Upplestur á frétt 

Síðastliðið sumar efndu Borgarbókasafn og Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur til samkeppni um nafn á listaverk sem unnið var af Söguhring kvenna undir stjórn Lilianne Vorstenbosch, myndlistakennara. Verkið var afhjúpað við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu á Fjölmenningardegi borgarinnar, laugardaginn 14. maí.

Nánar um samkeppnina

Fjölmargar tillögur að nafni bárust og er nú komið að því að tilkynna hvaða tillaga bar sigur úr bítum. Athöfnin fer fram í Söguhring kvenna, sunnudaginn 4. desember kl. 14 á 1. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15. Tékkneska söngkonan Jitka Stara syngur á ýmsum tungumálum. Boðið verður upp á veitingar. Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, verður kynnir.

Allir velkomnir!