Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Orkusalan sterkur styrktaraðili Vetrarhátíðar í Reykjavík 2012

16.12.2011

Upplestur á frétt 

Höfuðborgarstofa fagnar styrktarsamningi við Orkusöluna og stuðningi hennar við Vetrarhátíð í Reykjavík. Afar mikilvægt er fyrir viðburð líkt og Vetrarhátíð að hafa metnaðarfullan og sterkan styrktaraðila sem hefur áhuga á menningarlífi borgarbúa. Með styrktarsamningnum gengur Orkusalan til liðs við MP banka sem hefur verið helsti styrktaraðili hátíðarinnar undanfarin ár.

Í tilefni samstarfsins standa Orkusalan og Höfuðborgarstofa í samstarfi við Hönnunarmiðstöð fyrir samkeppni um opnunaratriði Vetrarhátíðar 2012. Verkið verður sett upp á óvæntum en fjölförnum stað í borgarrýminu og skal endurspegla, upplifun, gagnvirkni, gleði og STUÐ. Verkið markar upphaf Vetrarhátíðar og verður afhjúpað fimmtudagskvöldið 9. febrúar.

Dagskrá Vetrarhátíðar 2012
Aldrei hefur jafnmikill fjöldi safna tilkynnt þátttöku á Safnanótt, en í ár hafa 43 söfn staðfest þátttöku. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 10. febrúar, nær hún yfir sex sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu og er einn helsti hornsteinn Vetrarhátíðar. Söfnin verða með spennandi dagskrá í boði sem ber yfirskriftina magnað myrkur.  Þau nálgast þemað hvert á sinn skapandi hátt, auk þess sem þau bjóða upp á hefðbundnari sýningar og fjölmarga fjölskylduvæna viðburði.

Í burðarliðnum er Sundlauganótt sem er nýr og spennandi liður á Vetrarhátíð, og fer hún fram  laugardagskvöldið 11. febrúar. Þar mun kenna ýmissa grasa m.a. má bera fjölmarga listviðburði augum.

Heimsdagur barna verður að vanda haldinn í Gerðubergi, en hann hefur notið mikilla vinsælda um árabil með sinni fjölmenningarlegu nálgun. Í Gerðubergi verður boðið upp á fjölmargar spennandi listsmiðjur og skemmtiatriði fyrir börn og unglinga.

Vetrarhátíð hefur í heilan áratug boðið borgarbúum upp á fjölbreytta menningarviðburði og líflegar uppákomur sem litað hafa skammdegið skærum og skemmtilegum litum.  Með stuðningi sterkra bakhjarla er óhætt er að fullyrða að Vetrarhátíð 2012 verði fjölbreytt og spennandi með þéttskipaða dagskrá frá fimmtudeginum 9. febrúar til sunnudagsins 12. febrúar.