Villa Bergshyddan í Stokkhólmi laus til umsóknar
16.12.2011
Upplestur á frétt 
Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyddan í Stokkhólmi. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.
Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni, án endurgjalds, í eina eða tvær vikur á tímabilinu 16. apríl til 30. september 2012. Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld.
Umsóknareyðublað 2012
Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar 2012 til:
Stockholms Kulturförvaltning,
Nordiskt kultursamarbete,
Hanan Haidari,
Box 16113
SE - 103 22 Stockholm
Einnig er hægt að skila umsókn rafrænt í gegnum heimasíðuna www.stockholm.se/nordisktsamarbete
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, s. 590-1520, netf. nanna@reykjavik.is og Hanan Haidari hjá Stokkhólmsborg netf. hanan.haidari@stockholm.se