Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Búsáhaldabyltingin í Artóteki - síðasta sýningarvika

26.01.2012

Upplestur á frétt 

Næstkomandi sunnudag, 29. janúar lýkur sýningu verkum Diddu Hjartardóttur Leaman myndlistarmanns í Artóteki.
Sýningin er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.

Didda Hjartardóttir Leaman lauk framhaldsnámi frá málaradeild Slade School of Fine Art í London árið 1989 og frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987. Hún stundar nú meistaranám í kennslufræði sjónlistar við Listaháskóla Íslands.
Didda flutti aftur til Íslands fyrir fjórum árum, eftir tuttugu ára búsetu í London. Hún hefur því lengst af starfað erlendis að myndlistinni. Sýningin í Artótekinu er þrettánda einkasýning hennar. Árið 2009 hélt hún sem hún nefndi Skynjun og sköpun skrímslis í sýningarýminu Suðsuðvestur sem hún og árið áður sýndi hún í Start Art Gallery í Reykjavík. Einnig hefur hún tekið þátt i samsýningum í London og á Íslandi.

Didda notar ýmsa miðla við myndlistina. Hvert verkefni eða hugmyndin kallar á ákveðið vinnuferli og fær að ráða ferðinni. Hún hefur töluvert unnið með ævintýri og kort t.d. götukort af London.

Á sýningunni í Artótekinu eru ljósmyndir teknar í búsáhaldabyltingunni árið 2009. Myndirnar eru teknar í dimmu og stækkaðar talsvert upp. Þær eru hreyfðar og litur, ljós og hreyfing mynda saman einhverskonar ryþma í myndunum, sem er það sem listamaðurinn hefur áhuga á að fanga.

Didda hefur einnig unnið við þýðingar, kennslu, sýningarstjórn, skrif og ýmis önnur myndlistartengd verkefni. Hún er félagsmaður í Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Listasafn Reykjavíkur og einkaaðilar eiga verk eftir Diddu. 

Artótekið leigir út og selur íslenska myndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.

Sýningin stendur til 29. janúar
Opið er mánudaga - fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-18 og um helgar kl. 13-17