Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Menningarstofnanir

 

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Borgarbókasafn var stofnað 1919 og hýsir nú um 490.000 bækur og tímarit auk geisladiska, myndbanda og margmiðlunarefnis. Útlánsstaðir safnsins eru sjö auk bókabíls. Í öllum söfnunum eru svo kallaðir heitir reitir fyrir þá sem vilja koma með eigin tölvur og vinna á Netinu. meira


Gerðuberg menningarmiðstöð

Menningarmiðstöðin Gerðuberg er alhliða menningarmiðstöð sem leggur áherslu á gott aðgengi borgarbúa á öllum aldri að viðburðum og fræðslu á sviði menningar og lista. meira


Listasafn Reykjavíkur

Listasafn Reykjavíkur hýsir listaverk í eigu Reykvíkurborgar, m.a. verk eftir Erró og Jóhannes Kjarval. Safnið hefur einnig umsjón og eftirlit með myndverkum á almannafæri í eigu borgarinnar. Safnið heldur reglulega sýningar í nýjustu straumum og stefnum í íslenskri og alþjóðlegri samtímalist. meira


Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveitir ljósmyndir, glerplötur, filmur og skyggnur með þeim hætti að borgarbúar og gestir þeirra hafi sem bestan aðgang að ljósmyndun í eigu safnsins. Safnið veitir almenningi, fyrirtækjum og stofnunum Reykjavíkurborgar ráðgjöf og þjónustu á sviði ljósmyndunar. meira


Minjasafn Reykjavíkur

Minjasafn Reykjavíkur - Árbæjarsafn sinnir rannsóknum á sögu borgarinnar og minjavörslu sem felur í sér umsjón og eftirlit með menningarminjum í landi Reykjavíkur, svo sem skráningu og eftirliti fornleifa og gamalla bygginga. Landnámssýningin 871+/-2 tilheyrir Minjasafni Reykjavíkur. meira