Um sviðið
Menningar- og ferðamálasvið
Ingólfsnausti - Vesturgötu 1, 101 Reykjavík
sími 590-1520, fax 590-1501
Skrifstofa opin virka daga kl. 8:20 - 16:15
Sviðsstjóri er Svanhildur Konráðsdóttir
Menningar- og ferðamálasvið ber ábyrgð á menningarmálum og rekstri menningarstofnana Reykjavíkurborgar. Það annast tengsl og þjónustu við ferðaþjónustuna og heildstæða kynningu á Reykjavík. Þá sér sviðið um skipulagningu og framkvæmd ýmissa viðburða og hátíða.
Sviðsstjóri vinnur með menningar- og ferðamálaráði, stýrir undirbúningi fyrir fundi ráðsins og framkvæmd ákvarðana þess. Hann ber ábyrgð á að rekstur og stjórnsýsla Menningar- og ferðamálasviðs sé í samræmi við lög og markaða stefnu Reykjavíkurborgar þ.m.t. í fjármálum, þjónustu og starfsmannamálum. Sviðsstjórinn hefur faglega forystu á sviðinu, ber ábyrgð á innleiðingu breytinga og nýsköpunar og heyra stjórnendur stofnana sviðsins beint undir sviðsstjóra. Sviðsstjóri kynnir fyrir fagráði tillögur í frumvarp að fjárhagsáætlun og starfsáætlun og hefur eftirlit með framkvæmd stefnumótunar og starfsáætlana. Sviðsstjóri ber af hálfu sviðsins ábyrgð á samskiptum og tengslum þess innan borgarkerfis sem utan.
Skrifstofa sviðsins sinnir jafnframt þjónustu við menningar- og ferðamálaráð og samskiptum við stjórnsýslu borgarinnar. Skrifstofan ber ábyrgð á skjalavörslu, móttöku og umsjón erinda sem berast sviðinu. Mannréttindamál og umsjón með ytri og innri vef sviðsins er vistuð á skrifstofunni auk ýmissa annarra sérverkefna og eftirliti með framkvæmd stefnumótunar.
Skrifstofa rekstrar og fjármála ber ábyrgð á almennri á fjármálastjórnun, fjárhagsáætlunargerð og ráðgjöf til stofnana sviðsins. Á skrifstofunni eru unnin reglubundin uppgjör og ársreikningur og almennt eftirlit haft með rekstri. Skrifstofustjóri vinnur jafnframt með sviðsstjóra og forstöðumönnum stofnana að hagræðingu, bættri áætlanagerð og einstökum verkefnum á vettvangi fjármála og rekstrar. Miðlæg mannauðsmál og samhæft árangursmat sviðsins er einnig á ábyrgð skrifstofunnar og er skrifstofustjóri tengiliður sviðsins vegna miðlægrar þjónustu s.s. upplýsingatækni, innkaupamála, bókhalds og launavinnslu. Umsjón með Viðey er jafnframt á ábyrgð rekstrarskrifstofu.
Reykjavíkurborg var útnefnd ein af Bókmenntaborgum UNESCO á árinu 2011 og eru verkefni Bókmenntaborgarinnar hýst á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs.
Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri
svanhildur.konradsdottir@reykjavik.is
Berglind Ólafsdóttir, skrifstofustjóri fjármála og rekstar
berglind.olafsdottir@reykjavik.is
Heiðrún Aðalsteinsdóttir, verkefnisstjóri mannauðs- og fjármála
heidrun.adalsteinsdottir@reykjavik.is
Kristjana Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu
kristjana.nanna.jonsdottir@reykjavik.is
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Viðeyjar
gudlaug.e.olafsdottir@reykjavik.is og videy@reykjavik.is
Kristján Sveinlaugsson verkefnastjóri menningarkorts
kristjan.sveinlaugsson@reykjavik.is
Kristín Viðarsdóttir verkefnastjóri Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
kristin.vidarsdottir@reykjavik.is
Lára Aðalsteinsdóttir verkefnastjóri Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
lara.adalsteinsdottir@reykjavik.is
Elvar Örn Arason Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
elvar.orn.arason@reykjavik.is
Skrifstofa menningarmála vinnur ásamt sviðsstjóra að framkvæmd ákvarðana menningar- og ferðamálaráðs á vettvangi menningarmála. Vinnur ásamt sviðsstjóra að ýmsum þáttum er snerta starfsemi menningarstofnana sviðsins. Ber ábyrgð á undirbúningi, umsjón og tengslum vegna starfsamninga, styrkja og viðurkenninga á vettvangi menningarmála og er auk þess tengiliður Reykjavíkurborgar í málefnum Borgarleikhúss, Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ber ábyrgð á umsjón ýmissa sérverkefna s.s. rekstri Fógetastofa í Aðalstræti 10 o.fl. Alþjóðleg samskipti sviðsins í menningarmálum heyra jafnframt undir skrifstofustjóra menningarmála. Vinnur ásamt fjármálastjóra að áætlanagerð, uppgjörum og eftirliti með rekstrarlegum þáttum verkefna á sviði menningarmála. Umsjón með svörun fyrirspurna um menningarmál. Skrifstofustjórinn situr að öllu jöfnu fundi ráðsins og er staðgengill sviðsstjóra.
Signý Pálsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
signy.palsdottir@reykjavik.is
Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir verkefnastjóri barnamenningar
arnfridur.solrun.valdimarsdottir@reykjavik.is
Menningarstofnanir Reykjavíkurborgar
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Menningarmiðstöðin Gerðuberg, Minjasafn Reykjavíkur og Ljósmyndasafn Reykjavíkur starfa samkvæmt samþykktum Reykjavíkurborgar, menningarstefnu Reykjavíkurborgar og lögum og reglugerðum á hverju sviði.
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á ferðamálum f. h. Reykjavíkurborgar þ.m.t. heildstæðri kynningu og markaðssetningu á Reykjavík í samræmi við ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar. Hún sér jafnframt um undirbúning og framkvæmd viðburða og hátíða Reykjavíkurborgar skv. nánari skilgreiningu.