Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þekkingarheimsóknir

 Þekkingarheimsóknir


Reykjavíkurborg bíður upp á þekkingarheimsóknir (e. Study Visits/Technical Visits) til borgarinnar en verkefnið er hýst og stjórnað á Menningar- og ferðamálasviði. Margar evrópskar borgir bjóða upp á slíkar heimsóknir og hafa þær átt vaxandi velgengni að fagna.

Þekkingarheimsóknir eru skipulagðar heimsóknir þar sem tekið er á móti erlendum aðilum sem vilja kynna sér starfsemi og sérstöðu borgarinnar. Tilgangur þekkingarheimsókna er að gefa öðrum tækifæri á að kynnast og nýta reynslu Reykjavíkurborgar á hinum ýmsu sviðum til að ná betri árangri og/eða að kynna sér innleiðingu nýrra aðferða í rekstri.

Markhóparnir eru kjörnir fulltrúar, embættismenn, faghópar, fyrirtæki og hverjir þeir aðrir sem áhuga hafa á því að sækja okkur heim og kynnast ólíkum þáttum í starfsemi borgarinnar.

Heimsóknirnar fara þannig fram að boðið er upp á fyrirlestra og kynnisferðir í ýmsum flokkum. Auk þess er hægt að sníða heimsóknir að þörfum hvers og eins. Meðal þess sem boðið er upp á er kynning á fjölþættri nýtingu jarðvarma í Reykjavík, umhverfisstefnunni í verki, jafnrétti fyrir alla, skóla- og frístundastarfi, kraftmikilli uppbyggingu og skapandi borg.

Með því að vera gestgjafar í þekkingarheimsókum gefst Reykjavíkurborg tækifæri til að miðla því besta sem borgin hefur þróað í þekkingu, lausnum og rekstri og mynda í leiðinni fjölbreytt alþjóðleg tengsl. Það er jafnframt von okkar að verkefni þetta muni styrkja enn frekar ímynd Reykjavíkurborgar sem framsækinnar og alþjóðlegrar borgar og fjölga um leið gestum sem sækja borgina heim.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.visitreykjavik.is/studyvisits eða í netfangi studyvisits@reykjavik.is.

Verkefnastjóri þekkingarheimsókna er Einar Gylfason, studyvisits@reykjavik.is