Ferða-og markaðsmál
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á heildarkynningu Reykjavíkur á sviði ferðamála innanlands og utan. Stofan vinnur stöðugt og markvisst að því að skilgreina sóknarfæri og styrkleika Reykjavíkur á sviði ferðamála, m.a. með samþættingu nýsköpunar og vöruþróunar, markaðssetningar og viðburða.
Höfuðborgarstofa rekur einnig öfluga upplýsingamiðlun fyrir ferðamenn þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu sem tekur til landsins alls. Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík er staðsett í Aðalstræti 2.
Hefðbundið starf ferða- og markaðsmála má flokka með þrennum hætti; innra starf, staðbundin markaðssetning og alþjóðleg markaðssetning. Þessu til viðbótar fer fram stöðug vinna við að vernda og þróa vörumerkið Pure Energy.
Helstu verkefni í ferða- og markaðsmálum:
-
Almannatengsl. Móttaka erlendra blaðamanna og aðila í ferðaþjónustu er stór hluti af starfsemi starfsmanna ferða- og markaðsmála og skilar sér í öflugri kynningu á Reykjavík í erlendum fjölmiðlum og ferðabæklingum. Höfuðborgarstofa er í samstarfi við lykilaðila í ferða- og markaðsmálum vegna komu erlendra blaðamanna svo sem Ferðamálastofu, Icelandair og Iceland Express. Höfuðborgarstofa sinnir einnig blaðamönnum sem hingað koma vegna hátíða og viðburða í borginni.
-
Útgáfa. Skrifstofan sinnir margvíslegri útgáfustarfsemi á markaðs- og kynningarritum á Reykjavíkurborg. Útgáfur Höfuðborgarstofu má nálgast hér.
-
Ýmiskonar markaðstengt samstarf við lykilaðila í ferðaþjónustu og útflutningi.
-
Alþjóðleg markaðssetning á helstu lykilmörkuðum.
-
Þátttaka í ferðasýningum innanlands og erlendis.
-
Ráðstefnuborgin Reykjavík. Á árinu 2006 var grunnur lagður að mörkun fyrir ráðstefnuborgina Reykjavík í samstarfi við Ferðamálastofu. Þema mörkunar er “Get the Idea”, þar sem vakin er athygli ráðstefnu-, viðskipta- og hvataferðagesta á að í Reykjavík, borg á mótum andstæðna, er skapandi borg þar sem hugmyndir spretta fram.
www.get-the-idea.is.
-
Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri ferðamála
dora@visitreykjavik.is
María Reynisdóttir, verkefnastjóri ferðamála
maria@visitreykjavik.is
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík (UMFR)
Markmið miðstöðvarinnar er að veita nákvæmar og faglegar upplýsingar til ferðamanna fyrir landið allt á allt að þremur til fimm erlendum tungumálum. Ennfremur að stuðla að samstarfi við birgja sem bjóða upp á hverskyns ferðaþjónustu á landinu öllu, ferðaþjónustu á landsvísu til heilla. Áhersla er lögð á að starfsfólk UMFR kynni sér reglulega þá ferðaþjónustu sem í boði er af eigin raun.
Lögð er áheyrsla á að ferðamenn erlendir og innlendir geti sótt upplýsingar og keypt og bókað ferðir og afþreyingu um landið allt hjá UMFR.
Mikilvægur hluti af starfi upplýsingafulltrúa UMFR er að viðhalda ýmsum grunnupplýsingum á ferðavefsvæði höfuðborgarsvæðisins www.visitreykjavik.is sem og viðburðadagatali borgarinnar, auk þess að svara fyrirspurnum sem berast rafrænt og símleiðis.
Gestakort Reykjavíkur
Með gestakorti Reykjavíkur er íbúum borgarinnar og gestum hennar gert enn auðveldara að njóta þess öfluga menningarlífs sem borgin hefur upp á að bjóða. Handhöfum kortsins er veittur ókeypis aðgangur að helstu söfnum á höfuðborgarsvæðinu, sundlaugum borgarinnar og strætó. Einnig fá korthafar ýmsa afslætti og ókeypis aðgang að interneti. Gestakortin fást í þremur mismunandi stærðum – 24 stunda, 48 stunda og 72 stunda og eru seld á Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík auk helstu hótela og bókunarmiðstöðva í borginni.
Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna
drifa@visitreykjavik.is
Auður Halldórsdóttir, upplýsingafulltrúi
audur@visitreykjavik.is
Julio Cesar Leon Verdugo
julio@visitreykjavik.is