Hátíðir og viðburðir
Höfuðborgarstofa sér um framkvæmd á skilgreindum borgarhátíðum og er farvegur fyrir undirbúning, framkvæmd og kynningu á viðburðadagatali borgarinnar auk þess að sinna samráði og ráðgjöf við skipuleggjendur viðburða.
|
Vetrarhátíð í Reykjavík
Vetrarhátíð er haldin árlega í febrúarmánuði til að auðga menningarlíf borgarinanr á Þorra. Vetrarhátíðin fagnar ljósi og vetri og dagskráin tengist menningu og listum, orku og atvinnulífi, félags- og skólastarfi, útivist, íþróttum, leikjum, umhverfi og sögu. Vetrarhátíðin er fyrir alla. Leitast er við að dagskráin endurspegli fjölbreytt mannlíf borgarinnar er daginn tekur að lengja. Hátíðin hefst á fimmtudagskvöldi með glæsilegum útiviðburði miðsvæðis í Reykjavík, en að honum loknum taka við fjölmargar og fjölbreyttar dagskrár víðsvegar í miðborginni. Hægt er að nálgast upplýsingar um Vetrarhátíð og senda inn hugmyndir allt árið á Höfuðborgarstofu, sif.gunnarsdottir@reykjavik.is |
 |
Hátíð hafsins
Hátíð hafsins samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum, en árið 1999 voru þessir tveir hátíðardagar sameinaðir í tveggja daga hátíðahöld á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Hátíðin hefur verið fjölsótt enda dagskráin fjölbreytt og þess er gætt að allir aldurshópar hafi gaman af. Skólaskipið Sæbjörgin siglir margar ferðir um sundin blá, þar af eina ferð upp á Akranes og eina flöskuskeytaferð. Furðufiskar eru til sýnis á Miðbakkanum, róðrakeppnin er hefðbundin og sömuleiðis ráarslagurinn. Af nýjum atriðum á Hátíð hafsins sem hafa verið að festa sig í sessi eru Sjómannalagakeppni Hátíðar hafsins og Rásar 2, Sjómannalagahátíðin og Fiskiveisla hátíðarinnar. |
 |
Menningarnótt
Menningarnótt er miðborgarhátíð í orðsins bestu merkingu því sjaldan skrýðist miðborg Reykjavíkur litríkari og skemmtilegri skrúða en þennan dag. Allur miðbærinn iðar af margvíslegu lífi og listgreinar blandast saman á nýjan og spennandi hátt. Enda höfðar Menningarnótt til breiðari hóps fólks en flestar aðrar hátíðir, ekki nóg með að framboð af uppákomum af öllu tagi sé aldrei jafn mikið heldur er stemmningin í miðbænum viðburður í sjálfu sér. Menningarstofnanir, verslanir, gallerí, bankar, hárgreiðslustofur, sjoppur taka þátt í Menningarnótt. Sumir bjóða upp á metnaðarfulla dagskrá, aðrir stilla málverki út í glugga, en langflestir taka þátt í þessari fjölmennustu hátíð landsins á einhvern hátt.
Hægt er að nálgast upplýsingar um Menningarnótt og senda inn hugmyndir allt árið á Höfuðborgarstofu, sif.gunnarsdottir@reykjavik.is
|
|

|
Ljósin tendruð á Oslóartrénu á Austurvelli
Rúm hálf öld er síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Í mörg ár hefur verið til siðs að halda upp á þessa vinargjöf með bæði hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum. Fjölskyldur safnast saman á Austurvelli fyrsta sunnudag í aðventu og taka við trénu frá sendiherra Noregs. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur, Dómkórinn syngur jólalög og kemur öllum í hátíðaskap og að sjálfsögðu líta nokkrir jólasveinar við. |
Karen María Jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða
karen@visitreykjavik.is
Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða
gummi@visitreykjavik.is