Viðey

Frá því Reykjavíkurborg fékk Viðey að gjöf árið 1986 hefur þar verið innt af hendi afar metnaðarfullt starf með áherslu á hinn mikla menningararf sem þar er til staðar. Fornminjauppgröftur hefur leitt í ljós byggð frá því á 10.öld og því skipar Viðey í mörgum skilningi stóran sess í sögu Reykjavíkur. Í Viðey er elsta steinhús landsins og næstelsta steinkirkjan, en báðar byggingarnar lét Skúli Magnússon reisa um miðja átjándu öldina.
Tveir alþjóðlega viðurkenndir listamenn, Richard Serra og Yoko Ono, hafa valið Viðey fyrir uppsetningu listaverka sem þeir hafa fært Reykvíkingum að gjöf.
Meginmarkmið:
Að bjóða gestum upp á fyrsta flokks þjónustu og afþreyingu
Að gera sögu Viðeyjar aðgengilega með sýningahaldi og útgáfu fræðsluefnis
Að tryggja örugga varðveislu bygginga og náttúrminja sem eru á minjaskrá
Að vernda náttúrulegt gróðurfar og fuglalíf, sem er einstakt í borgarlandinu
Að kynna og gera aðgengileg hin miklu menningarverðmæti sem felast í fornminjum, sögu og listaverkum í Viðey.
Heimasíða Viðey