Ferðamálastefna
Ferðamálastefna Reykjavikurborgar 2011-2020
Borgarstjórn samþykkti einróma Ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar 2011 – 2020, þann 3. maí 2011. Enn fremur var samþykkt tillaga borgarstjóra að hafinn skuli undirbúningur að útfærslu og framkvæmd lykilaðgerða Ferðamálastefnunnar. Markmiðið er að efla borgina sem áfangastað ferðamanna utan háannatíma samhliða því að Ráðstefnuborgin Reykjavík verði sett í forgrunn. Um er að ræða fjórar lykilaðgerðir:
- Samstarfsverkefni til þriggja ára um vöruþróun og nýsköpun í ferðaþjónustu í Reykjavík.
- Stofnun Borgarhátíðasjóðs sem hafi það að markmiði að efla viðburðadagatal Reykjavíkur, styrkja rekstrargrundvöll og auka kynningargildi ýmissa árvissra viðburða fyrir ferðaþjónustu í Reykjavík.
- Samstarfsverkefni til þriggja ára um víðtæka kynningu á Reykjavík sem aðlaðandi áfangastaðar utan háanna tíma.
- Samstarfsverkefni um að styrkja Reykjavík í sessi sem eftirsótta ráðstefnuborg og vettvang alþjóðlegra viðburða.
Nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu í Reykjavík
Efnt verði til samstarfsverkefnis við Ferðamálastofu, Íslandsstofu og fyrirtæki í ferðaþjónustu um vöruþróun og nýsköpun í ferðaþjónustu í Reykjavík. Brýn þörf er á að þróa fleiri tegundir af afþreyingu og upplifun sem byggja á því sérstaka sem hér er að finna – hvort sem er í útfærslu á nýtingu heita vatnsins í heilsuferðaþjónustu, nábýli við einstaka náttúru eða auðlindinni sem felst í kraftmiklum skapandi greinum: tónlist, kvikmyndum, hönnun o.s.frv. Á sviði vöruþróunar verði til dæmis litið til möguleika á því að gera Þríhnúkagíg á Reykjanesi að aðgengilegum ferðamannastað á heimsmælikvarða.
Stofnun borgarhátíðasjóðs
Borgarhátíðir skipta miklu máli í dagatali Reykjavíkur – jafnt fyrir heimamenn sem gesti. Borgarhátíðasjóður hefði það að markmiði að efla viðburðadagatal Reykjavíkur, styrkja rekstrargrundvöll og auka kynningargildi árvissra viðburða fyrir ferðaþjónustu í Reykjavík. Ferðaþjónustan kallar mjög sterkt eftir enn fjölbreyttara framboði og meiri festu svo hægt sé að markaðssetja og skipuleggja ferðir sem tengjast tilteknum viðburðum og markhópum.
Markaðsátak og uppbygging ráðstefnuborgarinnar
Lykiláherslurnar í Ferðamálastefnu Reykjavíkur liggja í að efla borgina sem áfangastað ferðamanna utan háannar samhliða því að Ráðstefnuborgin Reykjavík verði sett í forgrunn. Aukin áhersla verði lögð á að laða alþjóðlega viðburði til borgarinnar sem vekja áhuga á henni og fjölga gestum. Með tilkomu Hörpu opnast gáttir inn á markaði sem áður voru lokaðir. Með góðri samvinnu allra helstu hagsmunaaðila má koma Reykjavík kröftuglega á kortið sem sterkri og áhugaverðri ráðstefnuborg. Ráðstefnugestir skilja hvað mest eftir sig í hagkerfi borga auk þess sem þeir ferðast helst í miðri viku og utan háannatíma. Allt eru þetta grundvallaratriði fyrir ferðaþjónustufyrirtækin í borginni og burði þeirra til að halda uppi atvinnu og auka hana.
Við útfærslu á framkvæmd aðgerðanna skal leggja áherslu á að koma á víðtæku samstarfi við helstu hagsmunaaðila á hverju sviði og horfa að lágmarki til þriggja ára samstarfs. Jafnframt er það markmið Reykjavíkurborgar að framlag borgarsjóðs í hvert verkefni verði að lágmarki tvöfaldað með framlögum samstarfsaðila.
Ferðamálastefna Reykjavikurborgar 2011-2020
________________________________________________________________________________________
Ferðamálastefna Reykjavíkurborgar 2004 - 2010 kom út árið 2004 og var afrakstur vinnu fjölmargra aðila sem unnin var á vegum Höfuðborgarstofu. Að verkefninu komu hátt á annað hundrað manns; starfsmenn Reykjavíkurborgar, borgarfulltrúar og sérfræðingar og fagfólk úr ferðaþjónustunni.
Leiðarljós ferðamannaborgarinnar Reykjavíkur:
Reykjavík eflist sem höfuðborg Íslands í alþjólegri samkeppni á sviði ferðamála. Sérstaða hennar sem hreinnar og nútímalegrar menningarborgar í nábýli við einstaka náttúru verði þekkt og virt.
Reykjavík verði eftirsóttur áfangastaður allt árið um kring og þannig verði rennt styrkari stoðum undir fjölbreytt atvinnulíf og menningarstarf í tengslum við ferðaþjónustuna á Íslandi.
Kjörorð Reykjavíkur í markaðssetningu erlendis er Pure Energy eða "hrein orka". Kjörorðið vísar til þeirrar hreinu orku sem Reykjavík býr yfir á hinum ýmsu sviðum s.s. náttúru, menningar, sköpunarkrafts, atorkusemi, nýsköpunar og vatns.
Vefurinn www.visitreykjavik.is er opinber ferðamannavefur Reykjavíkurborgar. Þar má finna ítarlegar upplýsingar um gistingu, afþreyingu og viðburði í borginni.
Ferðamálastefna Reykjavíkurborgar 2004-2010 (5,22 MB pdf)