Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Borgin er umgjörð fyrir líf þeirra sem í hennibúa og þeirra sem hana heimsækja. Sú stefnumótun sem birtist í Aðalskipulagi Reykjavíkur til 2030 er bindandi fyrir allar aðrar skipulagsákvarðanir og mikilvægt að þær byggi á skýrri sýn til framtíðar.Áherslur og ákvarðanir í skipulagi hafa bein áhrif á lífsgæði borgarbúa.

Borg fyrir fólk er leiðarljós vinnu við endurskoðun aðalskipulagsins. Með því að setja manneskjuna í öndvegi og forgangsraða í hennar þágu við stefnumótun til framtíðar eru stigin skref í átt til betra borgarsamfélags.

Þétt, fjölbreytt og blönduð byggð er lykilatriði. Áherslan er á gæði hins manngerða umhverfis og á varðveislu menningararfsins.Markmiðið er að hverfi borgarinnar verði sjálfbærari, mannvænni og að öll nærþjónusta sé fyrir hendi. Borgin á enn fremur að verðagrænni, vistvænni og öðrum borgum til fyrirmyndar. Umferðarkerfi framtíðarinnar verður borgarmiðað þar sem gangandi og hjólandi eru settir í forgang og almenningssamgöngur skipa stóran sess.

Nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík sem nær til tímabilsins 2010-2030 hefur verið í vinnslu undanfarin misseri. Við vinnu þess hefur verið lögð áhersla á vandaðan og ítarlegan undirbúning. Að honum loknum verði síðan lagðar fram formlegar tillögur að nýju aðalskipulagi. Undirbúningurinn hefur falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaðila. Með vönduðum undirbúningi er auðveldara að skapa sátt um stefnu borgaryfirvalda í skipulagsmálum.

Aðalskipulagsvinnan hefur verið leidd af stýrihópi skipuðum fulltrúum frá bæði meiri- og minnihluta í borgarstjórn. Stýrihópinn skipa nú Páll Hjaltason (formaður), Hjámar Sveinson, Sverrir Bollason, Hólmfríður Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldurssonog Sóley Tómasdóttir. Auk þess sitja aðrir fulltrúar skipulagsráðs, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Jórunn Frímannsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir einnig fundi stýrihópsins.

Vorið 2010 voru lögð fram í stýrihópi endurskoðunar, frumdrög að nýju aðalskipulagi með helstu áherslum og megin markmiðum um byggðaþróun til ársins 2030 og framtíðarsýn til ársins 2050. Vegna borgarstjórnarkosninga vorið 2010 var frekari kynningu frumdraganna frestað en þau hafa verið til umfjöllunar í núverandi stýrihóp í vetur og nokkrar áherslubreytingar ákveðnar.

Áformað er að kynna drög að nýju aðalskipulagi næstkomandi haust og hefst þá nýtt kynningar- og samráðsferli. Sjá nánar Vinnuferli og samráð