Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Kjalarnes

Kjalarnes

Vel sóttur skipulagsfundur á Kjalarnesi

Kynningarefni frá fundinum (PDF)  
Fundargerð frá fundinum (PDF)

Fjöldi Kjalnesinga sótti fund um skipulagsmál í Fólkvangi á Kjalarnesi 26. mars 2012 til að kynna sér aðalskipulag Reykjavíkur 2010 – 2030 og áherslur skipulagsins á Kjalarnesi. Fundurinn á Kjalarnesi er sá sjöundi af tíu, en þeir verða haldnir í öllum hverfum borgarinnar. Fundirnir bera yfirskriftina Borg fyrir fólk – betri hverfi og er farið yfir áherslur í hverfum og breytingar á skipulagi. Þá gefst íbúum kostur á að koma með hugmyndir sem teknar verða til álita af skipulagsyfirvöldum og hafa margar góðar hugmyndir litið dagsins ljós.

Páll Hjaltason formaður skipulagsráðs og Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, héldu inngangserindi á fundinum um aðalskipulagið. Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur, fjallaði síðan um helstu áherslur aðalskipulags á Kjalarnesi.  Kjalarnes er að stærstum hluta dreifbýlt landbúnaðarsvæði auk þéttbýliskjarnans í Grundarhverfi. Helstu uppbyggingarsvæði innan borgarhlutans eru þéttbýlið í Grundarhverfi og atvinnusvæðið á Esjumelum. Til skoðunar er að skilgreina ný atvinnusvæði á norðanverðu Álfsnesi í tengslum við mögulega iðnaðarhöfn.

Að lokinni kynningu á aðalskipulagi gátu fundarmenn raðað sér niður í hópa allt eftir áhuga, til þess að ræða hin ýmsu mál og koma með tillögur að því sem betur má fara á Kjalarnesi. Meðal mála sem bar á góma voru umferðarmál við Vesturlandsveg auk breikkunar vegarins, Sundabraut, Álfsnes o.fl. Einnig komu fram athugasemdir frá íbúum varðandi fjölgun atvinnutækifæra í nágrenni við Grundarhverfið og styrkingu verslunar og þjónustu í hverfinu.