Hátíðir og viðburðir
Höfuðborgarstofa sér um framkvæmd á skilgreindum borgarhátíðum og er farvegur fyrir undirbúning, framkvæmd og kynningu á viðburðadagatali borgarinnar auk þess að sinna samráði og ráðgjöf við skipuleggjendur viðburða.
Menningarnótt er miðborgarhátíð í orðsins bestu merkingu því sjaldan skrýðist miðborg Reykjavíkur litríkari og skemmtilegri skrúða en þennan dag. Allur miðbærinn iðar af margvíslegu lífi og listgreinar blandast saman á nýjan og spennandi hátt.
Ljósin eru tendruð á Oslóartrénu á Austurvelli fyrsta sunnudag í aðventu. Rúm hálf öld er síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Í mörg ár hefur verið til siðs að halda upp á þessa vinargjöf með bæði hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum.
Vetrarhátíð er haldin árlega í febrúarmánuði til að auðga menningarlíf borgarinanr á Þorra. Vetrarhátíðin fagnar ljósi og vetri og dagskráin tengist menningu og listum, orku og atvinnulífi, félags- og skólastarfi, útivist, íþróttum, leikjum, umhverfi og sögu.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í maí 2011. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Barnamenningarhátið var haldin í fyrsta skipti í apríl 2010 með breyttu sniði og er ljóst að hún er kærkomin viðbót í viðburðaflóru borgarinnar.
Hátíð hafsins samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum, en árið 1999 voru þessir tveir hátíðardagar sameinaðir í tveggja daga hátíðahöld á Miðbakka Reykjavíkurhafnar.