Vetrarhátíð
Vetrarhátíð er haldin árlega í febrúarmánuði til að auðga menningarlíf borgarinanr á Þorra. Vetrarhátíðin fagnar ljósi og vetri og dagskráin tengist menningu og listum, orku og atvinnulífi, félags- og skólastarfi, útivist, íþróttum, leikjum, umhverfi og sögu.
Vetrarhátíðin er fyrir alla. Leitast er við að dagskráin endurspegli fjölbreytt mannlíf borgarinnar er daginn tekur að lengja. Hátíðin hefst á fimmtudagskvöldi með glæsilegum útiviðburði miðsvæðis í Reykjavík, en að honum loknum taka við fjölmargar og fjölbreyttar dagskrár víðsvegar í miðborginni. Föstudagur hátíðarinnar hefur einkennst af samstarfi bæði við leikskóla og grunnskóla en á föstudagskvöldinu ber Safnanótt Vetrarhátíðar hæst þegar öll söfn borgarinnar taka á móti gestum til miðnættis með metnaðarfullum og skemmtilegum dagskrám. Á laugardegi hátíðarinnar er mikið um að vera út um alla borgar þegar hátíðin tekur undir sig íþróttahallir, útivistarsvæði, sundstaði, skóla og margt fleira. Á laugardagskvöldi hátíðarinnar hafa erlendir gestir komið fram og lokið hátíðinni á framandi og skemmtilegan hátt. Þær erlendu hljómsveitir sem kryddað hafa Vetrarhátíð undanfarin ár eru The Cleaning Women frá Finnlandi, Voices for Peace, sem skipuð var tónlistarmönnum úr röðum Ísraelsmanna og Palestínuaraba, DCS, indversk – bresk bhangra hljómsveit, samíska söngkonan Marit Hætta og nú síðast franska þjóðlagarokksveitin Dionysos sem lék fyrir fullu Hafnarhúsi.
Hægt er að nálgast upplýsingar um Vetrarhátíð á www.vetrarhatid.is eða senda hugmyndir allt árið á sif.gunnarsdottir@reykjavik.is, skuli.gautason@reykjavik.is