PBS

Á döfinni

PBS dagurinn, starfsdagur PBS teyma leik- og grunnskóla verður haldinn fimmtudaginn 4. október kl. 14:15-17.

 

Dagskráin verður fjölbreytt og markmið dagsins er að starfsfólk PBS leik-og grunnskóla fái tækifæri til að kynna það starf sem unnið hefur verið og deila hugmyndum. Einnig mun fara fram kynning á úrræðum sem ætluð eru nemendum í áhættuhópi (gula svæðið) og nemendum með alvarleg hegðunarfrávik (rauða svæðið).

Að loknum kynningum verður boðið uppá málstofur þar sem nánar verður fjallað um hvert úrræði og starfsmenn PBS skóla munu deila reynslu sinni af innleiðingu.

 

 

Dagskrá:

13:30-14:15         Teymi setja upp sýningarbása

14:15-14:30         Setning PBS dagsins

14:30-15:30         Kynning á eftirfarandi úrræðum:

·       Eineltisforvarnir í PBS

·       Innstimplun/útstimplun (Check in/out)

·       Virknimat

15:30-16:00         Kynningar á básum og kaffi

16:00-16:40         Málstofur

16:40-17:00         Lokaávarp. Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs

 

 

 

 

Allt starfsfólk PBS leik-og grunnskóla er boðið hjartanlega velkomið.

Skráning fer fram hjá PBS teymisstjórum leik-og grunnskóla.