PBS

PBS dagurinn 1. október

PBS ráðstefna var haldin 1. október í sal Menntasviðs Reykjavíkur og tókst hún sérstaklega vel. Á ráðstefnunni komu saman teymi úr ellefu grunnskólum og tveimur leikskólum, sýndu útfærslur sínar og afurðir og skiptust á hugmyndum. Umræðuefni sem brenna á voru tekin upp í hópavinnu og Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur ræddi um árangursríka liðsheild við góðar undirtektir. Það er greinilega mikil gróska í PBS starfi í leik- og grunnskólum og spennandi verður að fylgjast áfram með þessum glæsilega hópi!

 

Hér má sjá myndir frá deginum:  Myndasýning PBS dagur 1. október 2009