Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Menntasvið og leikskólasvið

Blómamynd sem tekin er af barni í leikskólanum Bakka.

Vinátta barna og blóma | 01.09.2010

Grasagarðurinn býður elstu börnum leikskólanna í fræðsluheimsóknir í september. Í þeim kynnast börnin því m.a. hvernig hlúa má að blómum svo þau vaxi og dafni.

Börnin í Klébergsskóla njóta síðsumars og eru hér að borða nestið sitt út í náttúrunni á Kjalarnesi.

"Ég vildi ég ætti heima hérna" | 27.08.2010

Fyrsti skóladagurinn á þessu hausti fór vel af stað í Klébergsskóla og voru nemendur ánægðir að mæta aftur í skólann. Einn af yngri nemendunum hafði þetta á orði í miðri kennslustund í textílmennt: „Það er svo gaman í skólanum að ég vildi að ég ætti heima hérna“.

Engin kartafla má fara til spillis og börnunum á Bergi finnst þær litlu  bestar.

Uppskerutími hjá börnunum á Bakka og Bergi | 26.08.2010

Börnin í leikskólunum Bakka og Bergi hafa undanfarna daga tekið fagnandi við gjöfum jarðar, en nú er uppskerutími hjá þeim. Leikskólarnir tveir eru nú reknir saman undir stjórn Ingibjargar E. Jónsdóttur.

Æfingin skapar meistarann. Ungur þverflautuleikari undirbýr sig undir tónleika skólahljómsveitanna í Reykjavík.

Stefnt að auknu jafnræði í tónlistarnámi | 25.08.2010

Menntaráð samþykkti á fundi sínum 25. ágúst að skipa starfshóp til að marka stefnu um tónlistarfræðslu í samstarfi við skólastjóra, tónlistarkennara og aðra sérfræðinga. Hann á að hafa að leiðarljósi að efla fagvitund, kostnaðarvitund og jafnræði í tónlistarnámi og starfsemi tónlistarskóla í Reykjavík.

Fyrsti skóladagurinn í nýjum skóla.

Fyrsti skóladagurinn í nýjum skóla í Úlfarsárdal | 24.08.2010

Skólastarf hófst í nýjum Dalskóla í Úlfarsárdal í gær. Þrjátíu og einn grunnskólanemandi mætti til starfa og hófst fyrsta kennslustundin strax við setningu skólans með samsöng foreldra og barna. Nemendur voru að störfum allan fyrsta skóladaginn, inni sem úti, en frístundaheimili er jafnframt rekið í skólanum.

Skólasetning í grunnskólum borgarinnar

Rafræn skráning í mataráskrift hjá grunnskólunum

Ársskýrsla 2009 komin út

Aðgerðir til að bæta námsárangur drengja

Meiri gæði með samræmdum innkaupum skólamötuneyta


Skoða allar fréttir


Fríkirkjuvegur 1 

Menntasvið og Leikskólasvið
Fríkirkjuvegi 1
101 Reykjavík
Sími 411 1111
menntasvid@reykjavik.is
leikskolasvid@reykjavik.is


Börnin í borginni Brú - vettvangur um skólamál Foreign languages