Fréttir
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Í tilefni dagsins hefur verið gefið út veggspjald með gullkornum frá börnum sem afhent var borgarstjóra í dag. Hátt á annað hundrað leikskólastarfsfólk af öllu landinu fjölmennti líka á fagráðstefnu á laugardag þar sem fjallað var um læsi í víðum skilningi.
Mánudaginn 6. febrúar hefst innritun sex ára barna í grunnskóla og frístundaheimili Reykjavíkur. Innritað er í gegnum Rafræna Reykjavík.
Við úthlutun þróunar- og samstarfsstyrkja leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs á næsta skólaári verður haft að leiðarljósi að styrkja verkefni sem miða að auknu samstarfi og samþættingu verkefna þvert á skólastig, svo og lestrarhvetjandi verkefni.
Ný heimasíða um Menningarfána Reykjavíkurborgar var opnuð við hátíðlega athöfn í Dalskóla í morgun. Nemendur brugðu á leik með söng og dans við athöfnina.
Umfangsmiklar endurbætur hefjast við elsta hluta Breiðagerðisskóla um leið og skólaárinu lýkur í júní næstkomandi. Þær munu standa yfir fram á vor 2013.
Ungmennaráð stilla saman strengi Skáklistin blómstrar í SeljaborgDalskóli fær grenndarsvæði til útikennsluÖskudagsráðstefna í uppsiglinguLæsisstefna fyrir leikskóla
Skoða allar fréttir