Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sumar 2013 - upplýsingavefur fyrir íþrótta- og tómstundastarf í Reykjavík

Fréttir

Það voru stoltir nemendur í leikskólanum Steinahlíð sem drógu Grænfána að húni.

Steinahlíð dregur Grænfána að húni í fimmta sinn | 07.06.2013

Grænfáninn var dreginn að húni við hátíðlega athöfn í fimmta sinn í Steinahlíð í gær, 6.júní. Að þessu sinni var það Gerður Magnúsdóttir sem afhenti fánann fyrir hönd Landverndar. Það var hátíðarstemning í Steinahlíð og það var stoltur hópur barna sem tók við fánanum og dró hann að húni.

Á myndinni frá vinstri eru: Ragnar Þorsteinsson sviðstjóri SFS, Tómas Ó. Guðjónsson forstöðumaður FHG , Steinþór Einarsson skrifstofustjóri hjá ÍTR, Helena Óladóttir SFS, Þorkell Heiðarsson FHG og Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs.

Samstarf um kennslu og frístundastarf | 07.06.2013

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn (FHG), Skóla- og frístundasvið (SFS) og Íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR) undirrituðu Í gær, 6. júní, samning um samstarf á sviði náttúrufræðikennslu og frístundastarfs í FHG.

Vor og haust eru að jafnaði líflegur tími í skólahaldi. Myndin er tekin á vorhátíð hjá Austurbæjarskóla.

Skólaslit í grunnskólum Reykjavíkur | 07.06.2013

Þessa dagana standa yfir skólaslit í grunnskólum Reykjavíkur og eru þau síðustu mánudaginn 10. júní næstkomandi. Nemendur sem stunduðu nám í grunnskólunum í vetur voru um 14 þúsund og fá þeir nú kærkomið sumarfrí við leik og störf eftir annasaman vetur.

Nýjung, félagsmiðstöð á hjólum.

Félagsmiðstöð á hjólum | 06.06.2013

Í sumar verður Frosti með tilraunaverkefni sem ber nafnið Félagsmiðstöð á Hjólum.Félagsmiðstöð á Hjólum er færanleg félagsmiðstöð sem hefur það að markmiði að nálgast krakka í þeirra umhverfi, hvar og hvenær sem er.

Tekið hraustlega á því í sumarblíðu.

Frostaskjól komið í sumarskap | 06.06.2013

Það verður margt skemmtilegt í boði í Frostaskjóli í sumar. Frístundaheimilin verða öll með heilsdagsdagskrá þar sem unnið verður eftir mismunandi þemum hverja vikuna. Sem dæmi má nefna vísindaviku, vatnaviku, dýraviku og íþróttviku.

Kraftur á kassabílarallý á Ingólfstorgi

Margbreytileiki á menningarmóti í Háteigsskóla

Stóri leikskóladagurinn 7. júní

Skráning hafin í Haustsmiðju kennara 2013

Glæsileg afmælishátíð í Rimaskóla


Skoða allar fréttir



Foreldravefur Haustsmiðja kennara Frístundakortið Gátlisti vegna eineltisáætlana Atvinnutengt nám Foreign languages