Svo lengi lærir sem lifir
Námsflokkar Reykjavíkur bjóða fullorðnum Reykvíkingum, 16 ára og eldri, ný tækifæri til náms, auk náms- og starfsráðgjafar. Lögð er áhersla á að kennsla sé einstaklingsmiðuð, við hæfi hvers og eins. Stefnt er að því að með aukinni menntun öðlist nemendur aukinn sjálfsstyrk og lífgæði.
Það var glaðbeittur hópur sem kom í bæinn í vikulokin eftir afar velheppnaða heimsókn í Landbúnaðarháskólann að Reykjum í Ölfusi. Að morgunverði loknum var lagt af stað með rútu kl. 9 og á leiðinni austur var komið við í Hellisheiðarvirkjun þar sem við fengum góða leiðsögn um svæðið. Rennt var í hlað á Reykjum í blíðskaparveðri þar sem á móti okkur tók einvala lið