Tengdar fréttir
01.02.2011
Börn og ungmenni í forgangi í tónlistarnámi
Reykjavíkurborg mun leita allra leiða til að standa vörð um tónlistarkennslu barna og ungmenna í borginni. Engin ákvörðun hefur af hálfu borgaryfirvalda verið tekin um að hætta stuðningi við tónlistarnemendur sem náð hafa 16 ára aldri líkt og komið hefur fram í fréttum undanfarna daga.
Hingað til hafa engin aldursviðmið verið vegna framlaga til tónlistarnemenda í borginni, en Reykjavíkurborg er með þjónustusamninga við 18 tónlistarskóla. Jafnframt fer fram tónlistarkennsla í fjórum skólahljómsveitum sem eru m.a. í samstarfi við tónlistarskóla. Meðal þess sem nú fellur undir endurskoðun á vegum borgarinnar er að setja ný aldursviðmið í stuðningi borgarinnar við tónlistarnema og endurskoða m.a. í því ljósi þjónustusamninga við tónlistarskólana.
Tónlistarnám er samkvæmt skilgreiningu Sambands íslenskra sveitarfélaga ekki skylduverkefni sveitarfélaganna líkt og leikskóla- og grunnskólastarf. Borgaryfirvöldum ber hins vegar lagaleg skylda til að skila hallalausum fjárlögum. Því verður á tímum efnahagsþrenginga að leita allra leiða til að forgangsraða fjármunum þannig að jafnræðis sé gætt og að sem flestir njóti þeirra. Í því ljósi er verið að endurskoða stefnu borgarinnar fyrir tónlistarfræðslu sem koma mun til framkvæmda frá og með næsta skólaári. Að því starfi koma kjörnir fulltrúar, fulltrúar tónlistarkennara, tónlistarskólastjórar og stjórnendur skólahljómsveitanna. Einnig hefur verið haft víðtækt samráð við annað fagfólk í málefnum tónlistarskólanna.
Viðræður hafa lengi staðið á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisins um verkaskiptingu í tónlistarfræðslu. Niðurstaða liggur ekki fyrir, en Reykjavíkurborg er vongóð um að farsæl lausn náist fyrir alla tónlistarnema í borginni og um allt land.