Tengdar fréttir
03.02.2011
Stórtónleikar skólahljómsveitanna í Reykjavík
Sameiginlegir tónleikar skólahljómsveitanna í Reykjavík verða haldnir í Háskólabíói laugardaginn 5. febrúar 2011 kl. 14:00. Þeir eru samstarfsverkefni hljómsveitanna fjögurra, Skólahljómsveitar Grafarvogs, Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts, Skólahljómsveitar Austurbæjar og Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar.
Á fimmta hundrað ungra hljóðfæraleikara koma fram og leika þeir í fjórum sveitum;
·Gula sveitin er skipuð yngstu nemendunum sem hófu nám síðasta haust.
Lárus Grímsson stjórnar.
·Rauða sveitin er skipuð nemendum sem hófu nám haustið 2009.
Edward Frederiksen stjórnar.
·Græna sveitin er skipuð nemendum í svokölluðum B-sveitum skólahljómsveitanna, en þeir hófu nám 2007-2008.
Einar Jónsson stjórnar.
·Elstu nemendurnir eru í Bláu sveitinni en þeir hófu nám á árunum 2004-2006.
Vilborg Jónsdóttir stjórnar.
Efnisskrá þessara stórtónleika er fjölbreytt og áhugaverð fyrir börn og fullorðna. Leikin verða lög úr ýmsum áttum, ný íslensk tónverk í bland við kvikmyndatónlist. Ávarp flytur Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs, en kynnir er Halla Margrét Jóhannesdóttir.