Tengdar fréttir
16.03.2011
Skólahljómsveit Austurbæjar handhafi Nótunnar
Skólahljómsveit Austurbæjar vann á dögunum til viðurkenningar á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskóla á suðvesturhorninu. Hún er því handhafi Nótunnar í flokki samspils í miðnámi. C – sveit hljómsveitarinnar spilaði til sigurs með Blues Brothers syrpu.
Á viðurkenningarskjali kemur fram að Nótan sé veitt fyrir framúrskarandi flutning og umsögn valnefndar hljóðar svo:
„Smitandi leikgleði, snyrtileg sviðsframkoma og hæfilega villt brass“.
30 tónlistarskólar fluttu tónlist á uppskeruhátíðinni sem haldin var laugardaginn 12. mars. Allar sveitir sem unnu til verðlauna munu leika á tónleikum í Langholtskirkju 26. mars.
Skólahljómsveit Austurbæjar verður með sína árlegu vortónleika laugardaginn 19. mars kl. 16.00 í Langholtskirkju. Þar munu koma fram A - , B – og C – sveitir eða um 120 nemendur. Kaffisala verður að loknum tónleikum til styrktar ferðasjóð C – sveitar.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir