Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Þjónustutrygging - ný leið fyrir foreldra

02.09.2008

Upplestur á frétt 

uppbyggingÞjónustutrygging er mánaðarleg greiðsla sem foreldrar geta sótt um og ráðstafað að eigin ósk. Henni er ætlað að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til barnið byrjar í leikskóla. Foreldrar geta valið um að nýta greiðslurnar eftir þörfum og aðstæðum. Þannig geta þeir kosið að vera sjálfir lengur heima með barni sínu eða greiða ættingja fyrir að gæta barnsins.

pdf Sjá reglur um þjónustutryggingu

Hvernig sækir foreldri um þjónustutryggingu?

Hægt er að sækja um þjónustutryggingu á vefsíðu Reykjavíkurborgar um leið og umsókn um leikskólapláss er fyllt út. Farið er inn í Rafræna Reykjavík, þjónustuvef Reykjavíkurborgar og þar er hægt að nálgast umsóknir um þjónustu borgarinnar.

Foreldri skráir sig inn í Rafræna Reykjavík og fyllir út umsókn um leikskólapláss á hefðbundinn hátt. Þegar því er lokið er boðið upp á að fylla út umsókn um þjónustutryggingu. Ef barnið er nú þegar á biðlista eftir plássi í leikskóla þarf aðeins að fylla út umsókn um þjónustutryggingu.

Þegar umsókn um þjónustutryggingu er fyllt út þarf að ákveða hver á að fá þjónustutryggingu, foreldri eða annar aðili, til dæmis ættingi sem ætlar að gæta barnsins. Þjónustutrygging fellur niður um leið og barn hefur nám í leikskóla eða hjá dagforeldri.

Skoða upplýsingabækling um verkefnið Borgarbörn og þjónustutryggingu

PDF útgáfa af upplýsingabæklingi um verkefnið Borgabörn og þjónustutryggingu

 

Eitt af mikilvægustu verkefnum Reykjavíkurborgar er að tryggja yngstu borgurunum og foreldrum þeirra öryggi, faglegt starf og vellíðan. Borgarbörn er átaksverkefni sem miðar að því að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu fyrir foreldra yngstu borgaranna. Kraftinum er beint að því tímabili í lífi foreldra sem hefst þegar fæðingarorlofi lýkur. Verkefnið miðar að auknum sveigjanleika í þjónustu fyrir yngstu börnin, til viðbótar við metnaðarfulla uppbyggingu leikskólakerfis borgarinnar. Lokamarkmiðið er að Reykjavíkurborg bjóði fjölbreytta þjónustu fyrir fjölskyldur allra barna frá 12 mánaða aldri.

Helstu markmið með verkefninu Borgarbörn:

  • Ungbarnaskólar fyrir börn til þriggja ára aldurs verði settir á laggirnar.
  • Bjóða upp á þjónustutryggingu, greiðslu til foreldra barna sem hvorki eru í leikskóla né hjá dagforeldri.
  • Tryggja að árið 2012 geti foreldrar allra barna 1 árs og eldri valið um þjónustu með markvissri uppbyggingu
  • leikskóla, fjölgun deilda í eldri leikskólum og hraðari uppbyggingu í nýjum hverfum.
  • Styðja dagforeldrakerfið betur og efla það með hærri greiðslum til dagforeldra.
  • Gera tilraunir með nýjar leiðir í þjónustu dagforeldra.
  • Tryggja rafræna þjónustu við foreldra til að einfalda upplýsingaflæði og yfirsýn.     

Nánari upplýsingar um Borgarbörn.

 

kubbar