Hlutverk og helstu verkefni starfshópsins Börnin í borginni:
-
Að vera með almenna vöktun á líðan barna í Reykjavík, óháð efnahag og félagslegri stöðu.
-
Að vakta líðan barna í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum og frístundastarfi Reykjavíkurborgar.
-
Samstarf við aðgerðateymi Velferðarsviðs og gagnkvæm upplýsingagjöf, þ.m.t. að koma til skila upplýsingum sem snúa að vanlíðan og erfiðleikum barna og ungmenna til aðgerðateymis.
- Að fylgjast með vanskilum vegna greiðslu á matarkostnaði grunnskólum, leikskólagjöldum frístundaheimilum.
Rafrænt fréttabréf teymisins: 1. tbl. nóvember 2008 2. tbl. desember 2008 3. tbl. mars 2009
Aðstoð við fjölskyldur Oft snúa foreldrar sér beint til leikskóla/grunnskóla síns barns með ábendingar eða fyrirspurnir sem tengjast aðstæðum fjölskyldunnar og haft gætu áhrif á líðan barnsins, stöðu og skólagöngu. Oft er hægt að greiða úr málum innan skólans. Í þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar er boðið upp á ráðgjöf og aðstoð fyrir fjölskyldur.
Þjónustuver borgarinnar vísar á viðeigandi aðila, sími 4 11 11 11. Þjónustuverið svarar og beinir fyrirspurnum um aðstoð og gefur samband við allar stofnanir borgarinnar m.a.: - Leikskóla í Reykjavík - Grunnskóla í Reykjavík - Frístundaheimili - Þjónustumiðstöðvar í öllum hverfum.
Aðilar og málaflokkar tengdir börnum
Lýðheilsustöð - Hugum að velferð barna Miðstöð heilsuverndar barna Barnaverndastofa umhuga.is - Upplýsingavefur um geðheilsu barna og ungmenna Verndum bernskuna - Heilræði fyrir foreldra og aðra uppalendur
Umboðsmaður barna |
Ertu með upplýsingar eða hugmyndir?
- - Upplýsingar um eitthvað sem tengist efnhagsástandinu, t.d. um líðan barna, fjölskyldna,starfsmanna í leik- og grunnskólum eða í frístundastarfi?
- - Hugmynd að einhverju sem hægt er að gera til aðstoðar fólki sem á um sárt að binda?
- - Upplýsingar um úrræði sem í boði eru fyrir börnin og þá sem starfa með þeim við þær aðstæður sem nú eru (og ekki eru þegar tilgreind hér á síðunni)?.
- - Erindi sem þú telur eiga heima á fundi borgarteymisins Börnin í borginni?
Sendu tölvupóst á netfangið bornin@reykjavik.is

Hjá Velferðarsviði Reykjavíkur er boðið upp á þjónustu fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Sviðið hefur nú gert yfirlit yfir þá þjónustu sem í boði er þarog öðrum aðilum í samfélaginu.
Sjá: Þjónusta við einstaklinga og fjölskyldur
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
|