List og menning í leikskólastarfi
06.11.2009
Upplestur á frétt 
Safnafræðsla í vetur hjá Listasafni íslands
Sjá hér upplýsingar um safnafræðslu fyrir leikskóla og grunnskóla.
Framtíðarsýn í listkennslu
Hér má sjá áhugavert myndband sem fimm nemendur í Listkennsludeild Listaháskóla Íslands unnu í áfanganum "Framtíðarsýn í listkennslu" kennari var Vigdís Jakobsdóttir. Viðmælendur voru spurðir eftirfarandi spurningar: Ef skólakerfinu yrði umbylt á morgun og helmingi alls tíma grunnskólanemenda yrði varið í listgreinar, hverju myndi það breyta fyrir nemendur, kennara og samfélagið almennt?
Ævintýri á gönguför.
Út er komin handbókin Ævintýri á gönguför, uppgötvanir og fróðleikur fyrir börn á leikskólaaldri í miðborg Reykjavíkur eftir Braga Bergsson. Í bókinni er að finna skemmtilegar gönguleiðir um miðborgina, þær merktar inn á kort og lýst nákvæmlega. Styttur, menningarstofnanir, söfn, garðar og merkilegar byggingar eru kortlagðar og gefin góð ráð um það hvar er best að bíða eftir strætó, borða nestið í gönguferðinni eða fara inn með stóran barnahóp. Þá eru settar fram hugmyndir að tíu verkefnum sem hægt er að vinna með börnum í gönguferð um miðborgina s.s. eins og verkefni með sjóndeildarhringinn, styttur, kennileiti, mannlíf eða gróður. Eins og fram kemur í inngangi bókarinnar er hægt að útfæra gönguleiðirnar á ólíkan hátt og aðlaga verkefnin að ólíkum aldri barna þannig að ævintýrin ættu að nýtast í starfi með börnum í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi sem og fjölskyldum sem kynnast vilja miðborginni betur. Sjá nánar Ævintýri á gönguför
Barnamenningarhátíð í Reykjavík 17.- 22. apríl 2012.
Barnamenningarhátíð verður haldin í annað sinn á vordögum. Hátíðin er kærkominn vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún er byggð upp á mörgum smáum viðburðum og rúmar allar listgreinar og allt sem að börnum snýr. Hátíðin hefur það ekki síður að markmiði að efla umræðu um barnamenningu í samfélaginu, fjölmiðlum og á torgum. Meira um hátíðina.
Að skapa en ekki apa
Hvað er að vera skapandi og hvernig virkjum við skapandi hugsun barna? Kristín Hildur Ólafsdóttir mun fjalla um sköpun og skapandi starf í leikskóla og tengja við nýja aðalnámskrá leikskóla. Haldið í leikskólanum Sæborg 29. nóvember kl. 17:30. Sjá nánar.
Krummi Krunkar úti - lærum að syngja og kveða íslensk alþýðulög í Gerðubergi
Til er fjöldinn allur af íslenskum alþýðulögum um krumma, sum þeirra eru mjög vel þekkt en önnur minna. Gerðuberg býður upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá um krumma fyrir eldri börn leikskóla (fædd 2006 og 2007) og yngstu börn grunnskóla (fædd 2005). Dagskráin er í umsjón Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau eru frábært tvíeki þegar þjóðleg tónlist er annars vegar og því um einstaka upplifun að ræða fyrir börnin. Krummi krunkar úti verður í boði fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum valda daga í október og nóvember. Krummadagskráin hefur áður verið í boði, vorið 2010, við miklar vinsældir. Nánari upplýsingar hér.
Sýningar í Þjóðmenningarhúsinu fyrir leikskólabörn
Sýningarnar Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson, Þúsund ár og Þjóðin og náttúran eru sýningar sem leikskólabörnum er boðið að sjá í Þjóðmenningarhúsinu í vetur. Mælt er með því að hver heimsókn einskorðist við aðeins eina af ofangreindum sýningum en heimsóknirnar eru ókeypis. Hafið samband við Jóhönnu Bergmann vegna bókunar heimsókna en hún tekur á móti hópum og veitir leiðsögn frá kl. 9 til 16 virka daga. Hver heimsókn varir í ca. 45 mín. til klukkustund. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðunni www.thjodmenning.is. og einnig hér.
Fræðslu og kynningarfundur um list og menningu fyrir leikskólabörn
Föstudaginn 23. september kl. 10:00 verður haldinn fræðslu og kynningarfundur í Listasafni Reykjavíkur- Hafnarhúsi. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leikskóla en á honum verður kynnt starfsemi lista- og menningarstofnana í Reykjavík sem ætluð er leikskólabörnum í vetur, sagt frá barnamenningarhátíð, menningarfánanum og nýju verkefni fyrir leikskólabörn um miðborg Reykjavíkur sem kallast Ævintýri á gönguför. Nánari upplýsingar um dagskrá má finna hér.
Söngkrybban Krí Krí
Í vetur býður Gerðuberg upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá fyrir eldri börn leikskóla (fædd 2006) og yngstu börn grunnskóla (fædd 2004, 2005). Dagskráin er byggð á sögum um mexíkósku söngkrybbuna Krí Krí. Etna Lupita Mastache og Haydee Lira Nuñez hafa umsjón með dagskránni. Þær hafa báðar mikla reynslu af að vinna með börnum og hafa tekið virkan þátt í menningarlífi borgarinnar á undanförnum árum. Etna er dans- og leiklistarkennari og Haydeé hefur starfað með börnum í leikskólum og á frístundaheimilum.
Markmið smiðjunnar er að börnin kynnist mexíkóskri menningu gegnum söng og dans. Þau fá að fræðast um Mexíkó, spænskuna og kynnast Gabilondo Soler, sem bjó til söguna um söngkrybbuna Krí Krí. Í sögunni felst boðskapur sem segir að þótt tungumálin okkar séu ólík og fólk frá öðrum löndum líti ekki alveg eins út þá erum við öll ósköp svipuð inn við beinið. Nánari upplýsingar um skráningu og fleira má nálgast hér.
Brúðuleikhús Helgu Steffensen verður á ferðinni í vetur með leikritin , Selurinn Snorri, Vinátta og Númi á ferð og flugi.
Selurinn Snorri er fyrir börn á öllum aldri og hefur notið fádæma vinsælda. Sagan gerist langt norður í Íshafinu þar sem selurinn Snorri lendir í ýmsum ævintýrum á ísbreiðunni. Margar persónur koma við sögu s.s. rostungurinn Skeggi, fiskar og kópar og líka ísbjörninn og hvalurinn Glefsir sem eins gott er að vara sig á.
Vinátta samanstendur af tveimur leikritum sem heita "Risinn eigingjarni" og "Prinsessan og froskurinn". Risinn er svo eigingjarn að hann rekur alla krakkana úr garðinum sínum. Honum leiðist óskaplega því hann á enga vini. En hvernig eignast maður vini? Prinsessan og froskurinn fjallar um það að best er að vera maður sjálfur. Froskinn langar til að verða hann sjálfur aftur, bara froskur. Leikritð er byggt á gömlu ævintýri.
Númi á ferð og flugi hefur verið á ferðinni í nokkur ár og er unnið í samvinnu við Slysavarnarfélagið Landsbjörg. Leikritið fjallar um ýmislegt sem ber að varast og passa sig á. Númi er strákur með sjö höfuð og ýmislegt gerist áður en hann áttar sig á að við höfum jú bara eitt höfuð sem er eins gott að gæta vel. Leikritið er gert upp úr bók SJÓN um Núma með höfuðin sjö. Margar persónur koma við sögu og einnig birtist Blárefurinn úr Brúðubílnum og kennir krökkunum hvernig er best að fara yfir götuna!!
Hægt er að panta sýningar á e-mail hsteff@mmedia.is eða í síma 895-6151 hjá Helgu. Hver sýning tekur u.þ.b. 30 mínútur.
Kærar þakkir og bestu kveðjur Helga Steffensen
Sögustund í Kúlunni - Barnaleikhúsi Þjóðleikhússins.
Til leikskólanna. Boð í leikhúsið.
Þjóðleikhúsið leggur sérstaka áherslu á leihúsuppeldi, bæði með leiksýningum og fræðslu fyrir yngri leikhúsgesti. Á þessu leikári býður leikhúsið leikskólabörnum á aldrinum 4 - 5 ára að koma í heimsókn í leikhúsið með kennurum sínum. Börnin fræðast á skemmitlegan hátt um leikhúsið og kynnast töfraheimi þess og taka þátt í sögustund. Sl. haust komu hátt í 5000 börn frá 160 leikskólum í heimsókn og sáu ævintýrið um Lítil, Trítil og fuglana. Nú í haust bjóðum við skólunum að koma aftur með 4 - 5 ára börn á sögustund til að sjá og heyra ævintýrið um Hlina Kóngsson í flutningi leikaranna Þórunni Örnu Kristjánsdóttur og Ævars Þórs Benediktssonar. Leikstjórn er í höndum Friðriks Friðrikssonar.
Sýningar verða á þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum kl. 9.30 og kl. 10.30 fyrir hádegi og kl. 13.15 eftir hádegi.
Sýningartími er u.þ.b. 45 mínútur.
Sýningar hefjast 21. september og lýkur 14. október.
Ef þið hafið áhuga á að heimsækja okkur þá hafið samband sem allra fyrst svo hægt sé að skipuleggja sýningarnar, en við reiknum með áttatíu til hundrað börnum á hverja sýningu og þá úr fleiri en einum skóla í einu.
Sýningarnar verða í Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðleikhússins að Lindargötu 7 bak við Þjóðleikhúsið.
Hér eru svo örstutt skilaboð til barnanna frá Ævari og Tótu:
NÁMSKEIÐ Í HREYFIMYNDAGERÐ Á VEGUM RIFF OG REYKJAVÍKURBORGAR
Kæru leikskólar/leikskólasvið.
Í ár fer fram námskeið í hreyfimyndagerð á vegum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík og Reykjavíkurborgar.
Á námskeiðinu læra kennarar og nemendur að vinna saman að gerð hreyfimyndar. Við gerð hreyfimyndarinnar þarf eitthvert efni til að vinna með á borð við leikföng eins og kubba, dúkkur, dýr eða bíla, efnisbúta, slæður, leir, eða úrklippur sem börnin geta notað við gerð hreyfimyndarinnar. Jafnvel mætti vera búið að mála bakgrunnsmyndir áður en við komum í skólann, eða hvaðeina sem hugarflugið býður.
Nánari upplýsingar má finna hér.
Sjá má dæmi um hreyfimyndir á vefslóðunum:
http://vimeo.com/alinoe/videos
Námskeið í myndlist og skapandi starfi með leikskólabörnum.
Undanfarin ár hefur Myndlistaskólinn í Reykjavík átt í árangursríku samstarfi við Leikskólasvið Reykjavíkurborgar sem hefur meðal annars falist í því að ákveðnir leikskólar hafa komið með barnahópa í myndlistarnám í Myndlistaskólann.Verkefnið er tvíþætt og snýr annars vegar að börnunum en hins vegar að leikskólakennurum og starfsfólki leikskólanna.Markmiðið er annars vegar að gefa börnum á leikskólaaldri tækifæri til að kynnast námi í myndlistaskóla og veita þeim innsýn í töfraheim myndlistarinnar undir handleiðslu fagfólks á sviði myndlistar og hönnunar.Hins vegar er það endurmenntun leikskólakennara í myndlistarkennslu og að styðja þá við að auka myndlistarkennslu og skapandi starf í leikskólunum sjálfum.
Á grunni þessa samstarfs verður boðið upp á endurmenntunarnámskeið fyrir leikskólastarfsfólk hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík
Skráning hefst mánudaginn 30. maí á www.myndlistaskolinn.is eða í síma 551 1990
Kennarar:Elsa Dóróthea Gísladóttir og Hildigunnur Birgisdóttir
Tími:17. september 2011 (laugardagur) klukkan 10-16
Staður:Hringbraut 121
Verð:15.000
Nánari upplýsingar er að finna hér
Endurmenntunarnámskeiðið byggir á reynslu þessa samstarfs.
Frekari upplýsingar um starf Myndlistaskólans með börnum á leikskólaaldri er að finna tveimur skýrslum á heimasíðu skólans:
Sóla sögukona segir leikskólabörnum frá jólunum í Grýluhelli og jólasveinunum.
Í ár býður Borgarbókasafnið upp á heimsókn frá Sólu sögukonu en hún segir leikskólabörnum frá jólunum í Grýluhelli og samskiptum við jólasveinana. Sóla hefur einnig búið víða um heim svo hún segir kannski líka frá venjum og siðum í öðrum löndum þar sem ekkert er haldið uppá aðfangadag og jólasveinarnir fljúga um á sleðum. Þessi viðburður er eins og áður leikskólunum alveg að kostnaðarlausu...Hægt er að panta Sólu og jólin...frá 1.-23.des. alla daga nema föstudaga.
Nánari upplýsingar fást hjá Ólöfu Sverrisdóttur verkefnastjóra Sögubílsins Æringja
olof.sverrisdottir@reykjavik.is
Tenglar á listaskóla, menningarstofnanir ofl.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2011
Næsta Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin dagana 3.-9. maí 2011. Nánari upplýsingar er að finna á vef hátíðarinnar www.barnamenningarhatid.is
Sjá skýrslu um aukið samstarf leikskóla og listaskóla
Sjá menningarstefnu Reykjavíkur
Hvað er í boði fyrir leikskólabörn hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur
Tengiliður Leikskólasviðs við listaskóla og menningarstofnanir er Fríða Bjarney Jónsdóttir.
