Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Öskudagsráðstefna 2010

19.01.2010

Upplestur á frétt 

Svo lengi lifir sem lærir, var yfirskrift Öskudagsráðstefnu Menntasviðs Reykjavíkurborgar, Skólastjórafélags Reykjavíkur og Kennarafélags Reykjavíkur, sem haldin var 17. febrúar 2010 í Ingunnarskóla. Á sjötta hundrað kennara sótti ráðstefnuna. Nú er hægt að nálgast glærur flestra fyrirlesarana hér fyrir neðan.

Aðalfyrirlestur: Hlutverk kennara í samfélaginu
Gestur Guðmundsson prófessor í félagsfræði menntunar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Hvernig hefur félagsfræði menntunar skilgreint hlutverk skóla og kennara, og eiga þær skilgreiningar erindi við okkur á núverandi örlagatímum fyrir íslenskt samfélag? Fyrirlestrarglærur.

Líðanin í vinnunni - ábyrgð allra
Lone Jensen, verkefnastjóri hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík
Skapar vinnugleði góðan árangur eða skapar góður árangur vinnugleði?? Svarið er mjög skýrt JÁ, við báðum spurningum. Það er erfitt að ímynda sér vinnustað ná góðum árangri til frambúðar, þar sem ekki ríkir vinnugleði. Fyrirlestrarglærur.

Vörður og vegvísir: Heildstæð íslenskukennsla í 1. – 5. bekk
Auður Bára Ólafsdóttir, Arna Vala Róbertsdóttir, Elín Anna Antonsdóttir, Kristjana Björnsdóttir, Kristjana Friðbjörnsdóttir, Þórunn Elídóttir, kennarar í Hamraskóla
Kynning á þróunarverkefni sem byggir á kennsluháttum í Ardleigh Green Junior School í London. Áhersla er lögð á samþættingu allra þátta móðurmálskennslunnar. Fyrirlestrarglærur.

SÍSL - Þróunarverkefni í lestrar- og ritunarþjálfun
Hulda Karen Daníelsdóttir kennsluráðgjafi í þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Ásdís Hallgrímsdóttir kennari í Ölduselsskóla og Lilja Jóhannsdóttir, kennari í Grandaskóla
Kynning á SÍSL (Sérfræðingateymi í samfélagi sem lærir) þróunarverkefni í lestri (PALS Peer-Assisted Learning Strategies) og ritun (6+1 Trait) sem unnið er að í skólum á Akranesi og í Mosfellsbæ og Reykjavík. Fyrirlestrarglærur Huldu.
Fyrirlestrarglærur Lilju.

„Að nemendur þroskist á náminu...“
Hafþór Guðjónsson, dósent við Menntavísindsvið Háskóla Íslands
Hugleiðing um stöðu og möguleika náttúrufræðikennslu í íslenskum grunnskólum. Fyrirlestrarglærur.

Útivist og hreyfing
Hulda Björk Jóhannsdóttir og Guðrún Jóhannsdóttir kennarar í Sæmundarskóla
Lýsing á þróunarverkefni Sæmundarskóla í Grafarholti.Hér er um að ræða íþróttatíma sem fara fram utandyra. Nemendur frá 1.-7. fá eina lotu á viku í Útivist og hreyfingu.

Vinátta, virðing og jafnrétti
Brynja Baldursdóttir og Sigríður Birna Valsdóttir kennarar í Hagaskóla
Þróunarverkefnið Vinátta, virðing og jafnrétti kynnt og þá einkum og sér í lagi þemadagur verkefnisins sem haldinn var í nóvember 2009. Fyrirlestrarglærur.

Heimurinn er hér, lærum og leikum saman
Fríða Bjarney Jónsdóttir ráðgjafi á Leikskólasviði
Í fyrirlestrinum verður rætt um fjölmenningarlega hugmyndafræði og bent á hagnýtar aðferðir til að flétta hana saman við kennslu í fjölbreyttum nemendahópi. Fyrirlestrarglærur.

Góður bekkjarandi – Til hvers? – Hver skapar hann?
Edda Kjartansdóttir, verkefnastjóri við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Haraldur Finnsson fyrrverandi skólastjóri
Fjallað verður um mikilvægi góðs bekkjaranda, rætt um ábyrgð kennara á því að byggja upp góðan bekkjaranda og gefnar hugmyndir um leiðir til að fara í því að byggja upp bekkjaranda. Fyrirlestrarglærur.

Er ekki allt í lagi? - Leiðir til að kenna lífsleikni og efla samskiptafærni
Aldís Yngvadóttir ritstjóri hjá Námsgagnastofunun
Fjallað verður stuttlega um hugtakið samskipti og hvernig námsgreinin lífsleikni getur verið vettvangur fyrir markvissa þjálfun í samskiptafærni. Fyrirlestrarglærur.

Er námsmat innantómt skjall?
Karl Frímannson, skólastjóri Hrafnagilsskóla.
Fjallað verður um tengsl námsmats, markmiðssetningar og kennslu og viðruð ólík sjónarmið um eðli námsmats. Fyrirlestrarglærur.

Námsmat – Upphaf eða endir?
Hrund Gautadóttir kennari í Ingunnarskóla.
Í Ingunnarskóla hefur verið lögð mikil áhersla á fjölbreytt námsmat. Meðal annars má nefna frammistöðumat í listgreinum, námsmöppur (portfolio), nemendasamtöl og óhefðbundin próf af ýmsu tagi. Fyrirlestrarglærur.

„Bara halda áfram með lífið!” Niðurstöður rannsóknar á skilum grunn- og framhaldsskóla
Gerður G. Óskarsdóttir fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík og núverandi fræðimaður
Fyrirlesturinn fjallaði um niðurstöður nýrrar rannsóknar á skilum grunn- og framhaldsskóla.

Það getur brugðið til beggja vona: Tengsl nemenda við skólann og brotthvarf þeirra frá námi
Kristjana Stella Blöndal, lektor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands
Markmið þessarar langtímarannsóknar er að kanna hvort þátttaka nemenda og viðhorf þeirra til náms og skóla á unglingsárum tengist því hvort þeir ljúka framhaldsskóla.

Sjálfstyrking í starfi, að hlúa að samkennd og starfsgleði
Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu
Mikilvægt er að vera meðvitaður um líðan sína  og hlúa vel að sjáflum sér. Að vinna með börnum og ungmennum getur verið mjög krefjandi og þá er mikilvægt að vera í góðu jafnvægi. Fyrirlestrarglærur.

Vinnugleði og faglegt sjálfstraust kennara - skoðað í tengslum við starfsumhverfið
Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur
Sagt frá rannsókn sem gerð var meðal kennara á því hvernig þeim líður í vinnunni. Fjallað um þá þætti sem virðast helst hafa áhrif á vinnugleði (sem er andstaða kulnunar), og um mikilvægi faglegs sjálfstrausts og hvernig það verður til. Fyrirlestrarglærur.