Meiri gæði með samræmdum innkaupum skólamötuneyta
12.08.2010
Upplestur á frétt 
Menntaráð samþykkti í dag tillögur starfshóps um rekstrarhagræðingu í máltíðaþjónustu grunn- og leikskóla Reykjavíkur. Tillögur hópsins miða að því að því að tryggja sem mest gæði við innkaup í samræmi við gæðakröfur Lýðheilsustöðvar. Meðal annars er lagt til að unnin verði hráefnismatseðill fyrir mötuneyti leik- og grunnskóla í sama hverfi og að hann verði grundvöllur að samræmdum innkaupum mötuneyta til að ná niður kostnaði.
Í haust verður farið af stað með þriggja mánaða tilraunaverkefni í Vesturbæ um hráefnismatseðil. Starfshópur hefur undirbúið það verkefni, en ráðinn verður verkefnastjóri til hálfs árs til að stýra því og meta árangurinn. Annar starfshópur mun vinna tillögur um einföldun á bókhaldi skólamötuneytanna til að auðvelda kostnaðargreiningu á hinum ýmsu þjónustuþáttum. Niðurstöður beggja verkefna verða nýttar til að skilgreina fyrirmyndareldhús (Best Practice) svo og þjónustustefnu fyrir mötuneyti leik- og grunnskóla borgarinnar.
Rúmlega 17.000 börn nýta mötuneyti leik- og grunnskóla í Reykjavík og tæplega 3.500 starfsmenn. Öll leikskólabörn fá að borða í sínum skóla og 85% grunnskólanema eru í mataráskrift og hefur þeim fjölgað hratt síðustu ár.
Könnun sem gerð var meðal skólastjórnenda í Reykjavík í fyrrahaust um nokkrar hagræðingarhugmyndir leiddi í ljós að mestur stuðningur var við að nota sama grunnhráefni sömu daga í leik- og grunnskólum í sama hverfi og við sameiginleg innkaup á þurrvöru. Þriðjungur leikskólastjóra var hlynntur hugmyndum um fækkun mötuneyta með samstarfi leikskóla í sama hverfi, en 13% grunnskólastjóra voru fylgjandi samstarfi mötuneyta grunnskóla í hverfum. Rúmur fimmtungur stjórnenda taldi raunhæft að fækka mötuneytum með samstarfi leik- og grunnskóla í sama hverfi og um helmingur þeirra taldi samstarf raunhæft milli mötuneyta grunnskóla og frístundaheimila.