Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Fyrsti skóladagurinn í nýjum skóla í Úlfarsárdal

24.08.2010

Upplestur á frétt 

Skólastarf hófst í nýjum Dalskóla í Úlfarsárdal í gær. Þrjátíu og einn grunnskólanemandi mætti til starfa og hófst fyrsta kennslustundin strax við setningu skólans með samsöng foreldra og barna. Nemendur voru að störfum allan fyrsta skóladaginn, inni sem úti, en frístundaheimili er jafnframt rekið í skólanum. Nemendur í Dalskóla dreifast í 1.-5. bekk með þó nokkurri samkennslu á milli bekkjarstiga.

Um fimmtíu leikskólabörn mæta til starfa í Dalskóla í næsta mánuði.