26.08.2010
Upplestur á frétt
Börnin í leikskólunum Bakka í Staðahverfi og Bergi á Kjalarnesi hafa undanfarna daga tekið fagnandi við gjöfum jarðar. Leikskólarnir eru nú reknir saman undir stjórn Ingibjargar E. Jónsdóttur.
Börnin í þessum tveimur leikskólum eru svo lánsöm að eiga fína matjurtagarða og nú er kominn uppskerutími. Það er spennandi að taka upp afrakstur vorverkanna og ekki verra hversu vel grænmetið smakkast, miklu betra heldur en það sem keypt er út í búð.
Myndirnar sýna vel áhuga og ánægju barnanna í haustuppskerunni.
Skóla- og frístundasvið
Borgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 1111sfs@reykjavik.is