27.08.2010
Upplestur á frétt
Fyrsti skóladagurinn á þessu hausti fór vel af stað í Klébergsskóla og voru nemendur ánægðir að mæta aftur í skólann. Einn af yngri nemendunum hafði þetta á orði í miðri kennslustund í textílmennt: „Það er svo gaman í skólanum að ég vildi að ég ætti heima hérna".
Nemendur hafa yfirleitt verið mjög ánægðir með matinn í mötuneyti skólans, m.a. brauðið sem bakað er á staðnum. Einn af eldri nemendunum heyrðist lýsa því yfir um daginn að þetta væri besta brauð sem hann hefði smakkað – og félagi hans bætti þá við: "Ég er búinn að bíða eftir þessu brauði í allt sumar!"
Skóla- og frístundasvið
Borgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 1111sfs@reykjavik.is