Ráðstefna um gildi sagnaarfsins í leikskólastarfi
01.02.2010
Upplestur á frétt 
Í tilefni af Degi leikskólans 6. febrúar efnir Leikskólasvið til ráðstefnu undir yfirskriftinni Þar sem gerast sögur og ævintýr. Markmiðið er að leiða saman fræðimenn og kennara til að ræða gildi sagnarfsins og hvernig nýta megi sögur og ævintýri í skapandi starfi með leikskólabörnum.
Á ráðstefnunni flytja m.a. erindi Baldur Hafstað prófessor við HÍ og Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknarlektor á þjóðfræðisviði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þá munu Berglind Ósk Agnarsdóttir leikskólakennari, félagar í Dúó Stemmu, kennarar í Myndlistaskóli Reykjavíkur og brúðugerðarmaðurinn Bernd Ogrodnik segja sögur í orðum og tónum og með skuggum og brúðum.
Í leikskólanum Dvergasteini er rík hefð fyrir verkefnum sem tengjast íslenskum þjóðsögum og sagnaarfi.Fulltrúar skólans munu segja frá því starfi. Þá verður sett upp sýning með verkefnum nokkurra leikskóla og barnadeild Borgarbókasafnsins sýnir bækur og diska með þjóðsögum og ævintýrum.
Ráðstefnan Þar sem gerast sögur og ævintýr er haldin í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð og er öllum opin.
Skráning fer fram á www.gestamottakan.is