Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Vel hugsað um mjólkurtennur í Völvuborg

08.02.2010

Upplestur á frétt 

Elstu börnin í Völvuborg vita nú allt um það hvað er hollt og óhollt fyrir tennurnar, en í tannverndarvikunni gerðu þau mörg skemmtileg verkefni og lærðu að bursta tennurnar rétt. Þá hafa þau á liðnum vikum unnið saman í hópum og gert ýmis einstaklingsverkefni um tannheilsu.

Tekinn var upp sá siður með yngri börnunum á Leynimýri að bursta tennurnar eftir hádegismatinn. Stefnt er að því að það verði fastur liður í skóladeginum og að innan fárra ára verði öll börnin í Völvuborg farin að bursta tennurnar einu sinni á dag.  Þetta er liður í tilraunaverkefni sem leikskólarnir í Fellahverfi; Völvuborg, Fellaborg, Ösp og Vinaminni taka þátt í með góðri hjálp og samstarfi við Lýðheilsustöð.