Fræðslufundur um læsi og birtingarmyndir þess
22.02.2010
Upplestur á frétt 
Fimmtudaginn 4. mars kl. 8:30- 11.00 verður haldinn fræðslufundur að Fríkirkjuvegi 1 um læsi og fjölbreyttar birtingarmyndir þess. Fjallað verður um læsi í skapandi starfi, hreyfingu, umhverfis- og náttúrulæsi svo og barnamenningu og menningarlæsi.
Dagskrá
8:30– 9:00 Leikið með læsi í skapandi starfi og hreyfingu
Margrét Sigurðardóttir, deildarstjóri í Ægisborg.
9:00 – 9:30 Maður sér ekki vel með augunum!
Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, menningarráðgjafi hjá
ÍTR, ræðir um barnamenningu og menningarlæsi.
9:30 – 10:00 Sögugrunnurinn og orðahljóð
Guðrún Sigursteinsdóttir sérkennsluráðgjafi kynnir
námsgögn til að efla málþroska og læsi í leik- og grunnskólum.
10:00 – 10:30 Kaffi
10:30 – 11:00 Umhverfis- og náttúrulæsi
Helena Óladóttir, Náttúruskóla Reykjavíkur.
11:00 – 11:30 Ótrúleg eru ævintýrin
Halldóra Guðmundsdóttir, deildarstjóri í Dvergasteini.
Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Fríðu á frida.b.jonsdottir@reykjavik.is eða Ingibjörgu á ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Sjá auglýsingu um fundinn.